Sparifataklæddir flokksstjórar
Flokksstjórar í Vinnuskóla Fljótsdalshéraðs breyttu um stíl seinasta vinnudaginn. Flokksstjórarnir mættu þá íklæddir sínu fínasta pússi og óku í hóp á tækjum sínum, til dæmis sláttuvélum, um götur Egilsstaða.
Flokksstjórar í Vinnuskóla Fljótsdalshéraðs breyttu um stíl seinasta vinnudaginn. Flokksstjórarnir mættu þá íklæddir sínu fínasta pússi og óku í hóp á tækjum sínum, til dæmis sláttuvélum, um götur Egilsstaða.
Rafn Heiðdal, knattspyrnumaður frá Djúpavogi, þakkaði stuðninginn eftir ágóðaleik sem haldinn var á Egilsstöðum fyrir hann seinasta föstudagskvöld. Rafn hefur í sumar barist við krabbamein og heldur þeirri baráttu áfram.
Fellamenn fögnuðu sigri á hverfaleikum Ormsteitis á föstudagskvöld. Keppt er í óhefðbundnum íþróttagreinum á milli hverfa á Fljótsdalshéraði á Vilhjálmsvelli. Keppnin markar upphaf héraðshátíðarinnar Ormsteitis.
Munkarnir þrír sem búa á Kollaleiru í Reyðarfirði segjast hafa nóg til alls. Þeir segja að Íslendingar hafi farið illa með verðmæti áður en efnahagslífið hrundi og eru ánægðir með þá breytingu sem virðist vera að verða á þjóðinni. Íslendingar leiti nú í auknu mæli í trúna.
Markaðsstofa Austurlands er meðal þátttakenda í Menningarnótt í Reykjavík á morgun. Austfirska dagskráin verður í Íslandstjaldinu við Geirsgötu 9.
Dagskrá hátíðarinnar Einu sinni á ágústkvöldi, þar sem minning bræðranna Jóns Múla og Jónasar Árnasona, er heiðruð, er í raun hafin með starfi listasmiðjunnar undir handleiðslu Valgeirs Skagfjörð. Í kvöld er bæjargrill á Vopnafirði og annað kvöld verður uppkeruhátíð í félagsheimilinu.
Sögusýningin „Bandamaður náttúrukraftanna“ um Svavar Guðnason listmálara opnar laugardaginn 4. september í „Kaupfélagshúsinu“ eða öðru nafni Kaupmannshúsi Ottós Tuliniusar á Höfn í Hornafirði. Sýningin er unnin af Huldu Rós Sigurðardóttur menningar- og listfræðingi en hún hefur undanfarið unnið að meistaraverkefni sínu um listamanninn.
Egill Jónsson tekur við stöðu skólastjóra Tónskóla Neskaupstaðar í byrjun næsta mánaðar af Ágústi Ármann Þorlákssyni. Ágúst hefur starfað við skólann í 34 ár en hann tekur við starfi framkvæmdastjóra Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar á Eskifirði.
Neytendafrömuðurinn, blaðamaðurinn og ofurbloggarinn Dr. Gunni hreifst af Seyðisfirði í nýlegri ferð sinni um Austurland. Hann var ekki hafn hrifinn af malakoffinu sem borið var á borð fyrir hann á Breiðdalsvík.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.