Eftirminnileg frumsýning
Klukkustundar rafmagnsleysi setti strik í reikninginn á föstudagskvöld þegar Leikfélag Seyðisfjarðar frumsýndi gamanleikinn Blúndur og blásýra.
Það er komið sumar
Þó að sumarið sé komið er gott að muna að veturinn er nýliðinn með sínum snjó, ófærð, kulda og allskonar óhagræði sem enginn saknar. Með því að minnast vetrarins njótum við sumarsins bara betur.Aðalsteinn í sauðburði
Nú stendur sauðburður sem hæst í sveitum, mikið að gera, fjölmennt á sumum bæjum og sauðburður um það bil hálfnaður víðast hvar. Fátítt mun samt vera að fjórir menn vinni við sauðburð á sama bænum sem allir heita sama nafninu.Miri selur lag til styrktar Mæðrastyrksnefnd
Lagið „Góða konan“ með hljómsveitinni Miri verður á morgun, sunnudaginn 9. maí, selt á Tonlist.is til styrktar Mæðrastyrksnefnd. Lagið er að væntanlegri breiðskífu, Okkar. Það kostar 500 krónur og rennur allur ágóði af sölunni á morgun óskiptur til málefnisins.
Gestir byggja fjöll úr kubbum - Legókubbar óskast á sýningu!
Gunnarsstofnun og Þórbergssetur eru að leita að gömlum, klassískum, litlum legókubbum til að byggja úr fjöll. Allir litir koma til greina en æskilegt er að sem mest sé af landslagslitunum hvítum, bláum, gráum og grænum.
Styrktartónleikar í beinni í Valaskjálf
Styrktartónleikar á SPOT í Kópavogi, til styrktar Margréti Andrésdóttir, verða sýndir í beinni útsendingu í Valaskjálf á Egilsstöðum fimmtudaginn 13. mai, uppstigningadag, milli klukkan 20:30 og 23:00