Vill að vetrarþjónusta á Öxi verði bætt verulega
„Sveitarstjórn Múlaþings leggur áherslu á mikilvægi þess að vetrarþjónusta á Öxi verði bætt verulega frá því sem nú er enda er um mikilvæga samgöngutengingu að ræða á milli byggðakjarna innan sveitarfélagsins.“Tveir starfsmenn ráðnir til rannsóknaseturs HÍ á Breiðdalsvík
Tobias Björn Weisenberg og María Helga Guðmundsdóttir hafa verið ráðin til starfa við rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík. Þau eru væntanleg austur í vor.Einar sækist eftir oddvitasætinu hjá Pírötum
Einar A. Brynjólfsson, fyrrum þingmaður Pírata í Norðausturkjördæmi, sækist eftir að leiða lista flokksins í Alþingiskosningum í haust. Einar var áður þingmaður flokksins árin 2016-17.Hreindýrakvótinn minnkar frá því í fyrra
Heimilt er að veiða allt að 1220 hreindýr í ár, 701 kýr og 519 tarfa. Þetta er aðeins minni fjöldi en í fyrra þegar samtals mátti veiða 1325 hreindýrFerðagjöfin fremur lítið notuð á Austurlandi
Ferðagjöfin sem komið var á laggirnar í fyrra var fremur lítið notuð á Austurlandi miðað við landið í heild. Samtals voru ferðagjafir að upphæð 28 milljónir kr. notaðar á Austurlandi en á landinu í heild nemur upphæðin 761 milljón kr.„Finnum að taugakerfi fólks er trekkt“
Talsvert álag hefur verið á geðheilbrigðisteymi Heilbrigðisstofnunar Austurlands og aðra sem veita sálrænan stuðning í kjölfar skriðufallanna á Seyðisfirði um miðjan desember. Tugir einstaklinga hafa farið í samtöl hjá teyminu.Fyrirtæki á Seyðisfirði búa við annan veruleika en fyrir miðjan desember
Fjöldi fyrirtækja á Seyðisfirði hefur orðið fyrir beinum og óbeinum áhrifum af skriðuföllunum þar í desember. Framkvæmdastjóri Austurbrúar segir þau þurfa stuðning til að nýta þau tækifæri sem framundan eru og koma sér aftur á rétt ról.Go-IoT hlýtur inngöngu í LoRa Alliance
Austfirska tæknifyrirtækið Go-IoT er orðinn fullgildur meðlimur að LoRa Alliance, samtökunum að baki LoRa WAN samskiptastaðlinum. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir aðildina mikilvæga fyrir fyrirtækið til að koma sér á framfæri og hafa áhrif á þróun staðalsins.Vinna við endurskoðun hættumats og varnarkosta að komast á fullt
Verkfræðingar og sérfræðingar Veðurstofu Íslands eru þessa dagana að komast á fulla ferð með endurskoðun hættumats og athuganir á framtíðarvarna gegn skriðuföllum í sunnanverðum Seyðisfirði.Heimastjórn sátt við breytingar í Berufirði
Heimastjórn Djúpavogs gerir ekki athugasemdir við tilkynningu Fiskeldis Austfjarða vegna fyrirhugaðra breytinga á staðsetningu eldissvæða og útsetningaráætlun í Berufirði, sé skilyrðum laga og reglugerða mætt.Loðna streymir til Fáskrúðsfjarðar
Nú hafa þrjú skip landað loðnu á Fáskrúðsfirði það sem af er vikunni, samtals 1.040 tonnum. Unnið er á vöktum allann sólarhringinn hjá Loðnuvinnslunni meðan á vertíðinni stendur.