Víðtækar þungatakmarkanir í vætutíð
Segja má að þungatakmarkanir hafi verið sett á alla helstu vegi á Austurlandi nema Fagradal, hringveginn úr norðri og Vopnafjarðarheiði í hádeginu í dag. Þær gætu haft þó nokkur áhrif á flutninga um svæðið.Norsk loðnuskip með fyrstu loðnuna til Austfjarða
Norska loðnuskipið Fiskebas landaði fyrstu loðnunni á Austfjörðum á föstudag þegar það kom inn til Fáskrúðsfjarðar. Fleiri skip hafa fylgt í kjölfarið, bæði þar og á Norðfirði.
Opnun rannsóknaseturs HÍ frestað um ár: Því miður eina leiðin sem okkur er fær
Opnun rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Egilsstöðum verður frestað um ár vegna fjárskorts skólans. Staða akademísks sérfræðings verður framlengd á meðan. Bæjarráð Fljótsdalshéraðs lýsir yfir vonbrigðum sínum en forstöðumaður hjá skólanum segir stefnu skólans áfram óbreytta.
Ekki haldið áfram með ofanflóðavarnir: „Synd að þessir peningar séu ekki nýttir“
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir vonbrigðum yfir að ekki sé gert ráð fyrir að halda áfram gerð snjóflóðavarna við Norðfjörð í fjárlögum þessa árs, einkum í ljósi þess að sérstakur sjóður sé til staðar fyrir ofanflóðavarnir.
Deila um yfirráð yfir heitu vatni við Selárdalslaug
Tvö mál eru fyrir héraðsdómi Austurlands sem tengjast deilum um yfirráð yfir landi og heitu vatni við Selárdalslaug í Vopnafirði. Deilt er um túlkun jarðasölusamning frá árinu 1963.
Kroppakjör risin á ný
„Ég átti mig sjaldnast á því hvað ég er orðinn gamall,“ segir Már Sveinsson, 84 ára íbúi í þjónustuíbúðunum Breiðabliki í Neskaupstað, en lítil líkamsræktaraðstaða var formlega opnuð þar á föstudaginn að hans frumkvæði.Austfirskir sjómenn eru eitilharðir í verkfalli
Formaður Sjómannadeildar AFLs segir baráttuhug í austfirskum sjómönnum sem hafa verið í verkfalli í einn og hálfan mánuð. Helst hefur strandað á deilum um hlutdeild í olíuverði.„Þessi dagur skiptir miklu máli“
„Dagur leikskólans skipar orðið stóran sess í okkar starfi, bæði hjá börnum og starfsfólki,“ segir Sandra Konráðsdóttir, leikskólastjóri í Brekkubæ á Vopnafirði.Loðnuvinnslan styrkir kvótann á Sandfellinu með að kaupa Borgarhöfða
Loðnuvinnslan hefur keypt útgerðina Borgarhöfða og bátinn Hafrafell með 700 tonna kvóta. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir kaupin styrkja heilsársútgerð Sandfellsins sem kom til Fáskrúðsfjarðar fyrir sléttu ári.
Vilja næga fjármuni til að ljúka rannsóknum
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar skorar á Alþingi og ríkisstjórn að nú þegar verði skilgreindir nægir fjármunir til að ljúka rannsóknaráætlun vegna Fjarðarheiðaganga í samræmi við samgönguáætlun 2015-2018.
Þóroddur Bjarnason: Að byggja upp Háskóla Íslands var byggðamál
Prófessor við Háskólann á Akureyri telur miklar breytingar framundan á háskólanámi í heiminum og spyr hvort stærri háskólar séu tilbúnir að takast við þá. Uppbygging menntastofnana hefur haft mikil áhrif á íbúaþróun í landinu undanfarna öl.