Fyrrum formaður starfsmannafélags VHE ákærður fyrir fjárdrátt
Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært fyrrum formann starfsmannafélags VHE á Austurlandi fyrir fjárdrátt. Formaðurinn er talinn hafa dregið sér tæpar átt milljónir króna úr sjóðum félagsins.
Tvö hross dauð eftir ákeyrslu
Tvö hross drápust þegar ekið var inn í hrossastóð á Hringveginum skammt innan við Egilsstaði miðvikudagskvöld. Kvartanir hafa borist vegna hrossa á ferli á þessum slóðum.
Fimm sóttu um stöðu félagsmálastjóra
Fimm sóttu um stöðu félagsmálastjóra Fjarðabyggðar en umsóknarfrestur rann út fyrir skemmstu. Sigrún Þórarinsdóttir sem gegnt hefur starfinu undanfarin ár sagði starfi sínu lausu í lok síðasta árs.
Stormur á Austurlandi: Leiðinni norður lokað
Vegagerðin hefur lokað veginum yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi um óákveðinn tíma. Meðalvindur þar er milli 20 og 30 metrar á sekúndu og vex heldur.
Tíu karlar sóttu um starf sviðsstjóra veitusviðs
Enginn kona er meðal tíu umsækjenda um starf sviðsstjóra veitusviðs hjá Fjarðabyggð. Starfið er nýtt og mun sviðsstjórinn bera ábyrgð á stjórnun og starfsemi vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og fráveitu sveitarfélagsins.
Telja sjálfbærniverkefnið merkilegt á heimsvísu
Fulltrúar Fjarðaáls, Austurbrúar og Landsvirkjunar undirrituðu í gær áframhaldandi samkomulag um sjálfbærniverkefnið á Austurlandi. Verkefnið felst í að safna og gera aðgengileg gögn um þróun umhverfis, efnahags og samfélags á Austurlandi í kjölfar Kárahnjúkavirkjunar og byggingu álversins á Reyðafirði.„Við erum sátt“
Við erum ánægð með það hvernig verið er að taka á málunum. Auðvitað erum við sár og reið en við vitum að þetta er góð manneskja og hún og sonur okkar eru miklir vinir,“ segir Una Sigríður Jónsdóttir, móðir Rúriks Páls, tveggja ára drengs í Leikskólanum Kærabæ á Fáskrúðsfirði.Stórskipahöfn í Finnafirði gríðarlegt verkefni ef af verður
Sveitarfélögin Vopnafjarðarhreppur og Langanesbyggð vinna nú að stofnun félaga til að halda utan um verkefni sem tengjast mögulegri stórskipahöfn í Finnafirði. Leitað er að fjárfestum og áhugasömum viðskiptavinum.
Íbúðarhús á Völlum illa farið eftir bruna
Íbúðarhúsið á Stormi á Völlum er illa farið eftir eldur kom þar upp rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Slökkvistarf gekk vel þótt það hafi ekki litið vel út á tímabili.
Ákærður fyrir að keyra vörubíl undir áhrifum kannabis
Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir að keyra 14 tonna vöruflutningabifreið undir áhrifum kannabisefna.
HB Grandi: Engar breytingar fyrirhugaðar á Vopnafirði
Forstjóri HB Granda segir engar breytingar framundan á starfsemi fyrirtækisins á Vopnafirði þar sem það er helsti atvinnuveitandinn. Tilkynnt var í gær að fyrirtækið myndi hætta botnfiskvinnslu á Akranesi.