Vel gengur að ná Drangi á flot
Vel gengur að ná togskipinu Drangi á flot í Stöðvarfjarðarhöfn. Byrjað er að dæla sjó úr skipinu.Allar björgunarsveitir á Austulandi leita manns í Stafafellsfjöllum
Umfangsmikil leit stendur nú yfir að manni sem er týndur í Stafafellsfjöllum í Lóni. Allar björgunarsveitir á Austurlandi og Suðurlandi hafa verið kallaðar út.Samkeppni um byggðamerki Múlaþings
Á fundi byggðaráðs Múlaþings í gærdag var samþykkt að efna til hugmyndasamkeppni um byggðamerki samkvæmt skilmálum reglugerðar og leiðbeininga Hugverkastofu.Maðurinn fundinn heill á húfi
Maðurinn sem leitað hefur verið að í Stafafellsfjöllum frá því í gærkvöldi er fundinn heill á húfi. Hann er nú á leið til byggða með björgunarsveitarmönnum.Þyrla LHG bíður átekta á Höfn
Þyrla Landhelgisgæslunnar (LHG) bíður nú átekta á Höfn í Hornafirði. Vont veður er á leitarsvæðinu þar sem tugir björgunarsveitamanna leita að týndum manni í Stafafellsfjöllum í Lóni.
Framhaldsskólarnir opna aftur
Heilbrigðisráðuneytið hefur heimilað nemendum að snúa aftur í dagskóla í Menntaskólanum á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands.Prófa hálkuvarnir á göngubrúm
Félagar í Gönguklúbbi Seyðisfjarðar hafa nú sett hálkuvörn á göngubrýrnar yfir Ytri-Hádegisá. Þeir vilja vita hvernig hálkuvörnin kemur út við mismunandi aðstæður.Ekki rétt að mæla umhverfisáhrif út frá megavöttum
Náttúruverndarsamtök Austurlands vilja að aðrar virkjanir en þær sem ætlaðar eru til heimilisnota þurfi að fara í umhverfismat og inn í rammaáætlun.Drangur hífður á flot í morgun
Hafist var handa við að hífa togskipið Drang í Stöðvarfjarðarhöfn á flot snemma í morgun. Tveir öflugir kranar eru notaðir við verkið.LED lýsing sparar Fjarðabyggð 15 milljónir króna
Áætlað er að LED lýsing á götukerfi Fjarðabyggðar muni spara sveitarfélaginu 15 milljónir kr á ársgrundvelli.Skafrenningur á Fjarðaheiði
Hálka og skafrenningur er á Fjarðarheiði og snjóþekja á Vatnsskarði eystra, Öxi og Breiðdalsheiði.