Vegagerðin bíður nú færis til að moka Fjarðarheiði og Fagradal. Vegirnir á báðum stöðum eru lokaðir vegna óveðurs og eru í biðstöðu þar sem ekkert skyggni er. Ekki er reiknað með að mokstur hefjist fyrr en eftir hádegið í fyrsta lagi, að sögn Vegagerðarinnar.
Engar vísbendingar hafa enn borist um afdrif karlmanns á fertugsaldri sem lögreglan á Austurlandi lýsti eftir í gær. Síðast er vitað um ferðir hans í höfuðborg Þýskalands í lok ágúst.
Mesta hlutfallsleg fjölgun íbúa í sveitarfélögum landsins undanfarið ár var í Fljótsdalshreppi. Fjölgun var í öllum sveitarfélögunum fjórum á Austurlandi.
Í bókun sem bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkti á fundi sínum sl. mánudag var Reykjavíkurborg hvött til að draga til baka 8,7 milljarðar króna kröfu sem hún hefur sett fram á Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, enda geti krafan haft þau áhrif að Jöfnunarsjóðurinn þurfi að draga úr framlögum sínum til sveitarfélaga til framtíðar.
7. bekkur Nesskóla hlaut á dögunum silfurviðurkenningu fyrir þátttöku í Berbas áskorunini. Bebras áskorunin er alþjóðlegt verkefni sem felst í að auka áhuga á upplýsingatækni og efla rökhugsun og tölvufærni meðal nemenda á öllum skólastigum.
Slökkviliðið á Egilsstöðum þurfti að hafa snör handtök þegar það var kallað út að íbúðarhúsi við Brávelli. Þar var kamínurör stíflað þannig að reykurinn komst ekki út. Við slíkar aðstæður hitna rörin mikið sem leitt getur til íkveikju.
Ákveðið hefur verið að framlengja frest sem íbúar hafa til að skila hugmyndum sínum um nýtt deiliskipulag Útkaupstaðarins á Eskifirði. Miklar breytingar eru framundan á svæðinu þar sem byrjað er að rífa niður mannvirki sem áður tilheyrðu Eskju.
„Heimastjórn á Djúpavogi krefst þess að betur verði staðið að þjónustu á Öxi. Vegagerðin hefur ekki sinnt hlutverki sínu sem snýr að umferðaröryggi og hefur verið látið hjá líðast að kanna aðstæður þar þegar eitthvað er að færð.“