Stjórn kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi styður kröfu Starfsgreinasambands Íslands um að lágmarkslaun skuli hækkuð í 300 þúsund krónur á mánuði.
Sveitarstjórn Breiðdalshrepps treystir því að bankaþjónusta í byggðarlaginu skerðist ekki frekar en orðið er eftir yfirtöku Landsbankans á Sparisjóði Vestmannaeyja fyrir skemmstu. Þetta kemur fram í bókun frá síðasta sveitarstjórnarfundi.
Aðalfundur Sparisjóðs Norðfjarðar samþykkti í gær að slíta sjóðnum og stofna nýtt hlutafélag í nafni Sparisjóðs Austurlands. Markmiðið er meðal annars að undirstrika að Austurland allt er aðalstarfssvæði sjóðsins.
Kauptilboð liggur fyrir af hálfu óstofnaðs félags í eigu aðila sem tengist Hildibrand-hóteli í Neskaupstað og Stóruþinghár, félags Sigurjóns Sighvatssonar, um kaup á Eiðastað. Bæjarráð Fljótsdalshéraðs leggur til að sveitarfélagið nýti ekki forkaupsrétt sinn að svæðinu.
Framvindan hefur verið upp og ofan Eskifjarðarmegin en búið er að borga meira en sex kílómetra af göngunum. Ný setbergslög koma stöðugt í ljós, einkum Eskifjarðarmegin, sem útheimta miklar styrkingar.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs veitti í kvöld bæjarráði heimild til að taka afstöðu til þess hvort fallið verði frá forkaupsrétti sveitarfélagsins á Eiðastað.
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt tvítugan karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita ellefu ára stelpu með kynferðislegu tali í gegnum samskiptaforritið Skype.
Samninganefnd AFLs Starfsgreinafélags, í vinnudeilu um kjör starfsmanna undirverktaka ALCOA, ákvað í fundi á laugardaginn að fresta áður boðuðu verkfalli um átta daga hjá hjá sjö aðildarfyrirtækjum SA sem starfa sem undirverktakar hjá ALCOA og einu fyrirtæki sem stendur utan SA.
Mokstursmenn frá Vegagerðinni hafa í vikunni unnið að því að opna vegina yfir Breiðdalsheiði og Öxi. Talsmaður Vegagerðarinnar segir opnanirnar á fjallvegunum hafa gengið vel.
Eins og Austurfrétt greindi frá í síðustu viku skora Seyðfirðingar á eigendur Samkaupa að breyta verslun staðarins í Nettó lágvöruverslun. Bæjarbúar eru langþreyttir á að keyra á Egilsstaði til að kaupa í matinn og vilja versla í heimabyggð. Framkvæmdastjórn Samakaupa fékk áskorunina í hendur fyrir helgi og hefur nú svarað Seyðfirðingum.
Ekkert er enn frágengið um hugsanlega starfsemi Hildibrand hótel á Eiðum. Fyrirtækið og núverandi eigandi, Sigurjón Sighvatsson, skoða nú möguleika á samstarfi á staðnum.