Helmingur tilnefninga að austan
Þrjú af þeim sex verkefnum sem eiga möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár eru af Austurlandi, en þau eru Eistnaflug í Neskaupstað, List í ljósi á Seyðisfirði og Rúllandi snjóbolti á Djúpavogi.Víðtækar þungatakmarkanir í vætutíð
Segja má að þungatakmarkanir hafi verið sett á alla helstu vegi á Austurlandi nema Fagradal, hringveginn úr norðri og Vopnafjarðarheiði í hádeginu í dag. Þær gætu haft þó nokkur áhrif á flutninga um svæðið.Norsk loðnuskip með fyrstu loðnuna til Austfjarða
Norska loðnuskipið Fiskebas landaði fyrstu loðnunni á Austfjörðum á föstudag þegar það kom inn til Fáskrúðsfjarðar. Fleiri skip hafa fylgt í kjölfarið, bæði þar og á Norðfirði.
„Allir eru sérfræðingar á sínu sviði“
„Ég er afar stoltur af því að taka við þessari viðurkenningu fyrir hönd starfsfólks Alcoa Fjarðaáls. Innan Fjarðaáls starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks sem eru öll sérfræðingar á sínu sviði,“ segir Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, en fyrirtækið var kosið menntafyrirtæki ársins á Menntadegi atvinnulífsins í síðustu viku.
Ekki haldið áfram með ofanflóðavarnir: „Synd að þessir peningar séu ekki nýttir“
Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir vonbrigðum yfir að ekki sé gert ráð fyrir að halda áfram gerð snjóflóðavarna við Norðfjörð í fjárlögum þessa árs, einkum í ljósi þess að sérstakur sjóður sé til staðar fyrir ofanflóðavarnir.
Deila um yfirráð yfir heitu vatni við Selárdalslaug
Tvö mál eru fyrir héraðsdómi Austurlands sem tengjast deilum um yfirráð yfir landi og heitu vatni við Selárdalslaug í Vopnafirði. Deilt er um túlkun jarðasölusamning frá árinu 1963.
Kroppakjör risin á ný
„Ég átti mig sjaldnast á því hvað ég er orðinn gamall,“ segir Már Sveinsson, 84 ára íbúi í þjónustuíbúðunum Breiðabliki í Neskaupstað, en lítil líkamsræktaraðstaða var formlega opnuð þar á föstudaginn að hans frumkvæði.Austfirðingar minnast Ólafar Nordal
Fjölmargir Austfirðingar, jafnt samflokksmenn sem aðrir, hafa minnst Ólafar Nordal, fyrrverandi þingmanns fjórðungsins, á samfélagsmiðlum. Samflokksmenn minnast hennar sem lærimeistara og aðrir sem manneskju sem lagði sig fram um að miðla málum. Ólöf lést í gærmorgun eftir baráttu við krabbamein.
„Þessi dagur skiptir miklu máli“
„Dagur leikskólans skipar orðið stóran sess í okkar starfi, bæði hjá börnum og starfsfólki,“ segir Sandra Konráðsdóttir, leikskólastjóri í Brekkubæ á Vopnafirði.Loðnuvinnslan styrkir kvótann á Sandfellinu með að kaupa Borgarhöfða
Loðnuvinnslan hefur keypt útgerðina Borgarhöfða og bátinn Hafrafell með 700 tonna kvóta. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir kaupin styrkja heilsársútgerð Sandfellsins sem kom til Fáskrúðsfjarðar fyrir sléttu ári.
Vilja næga fjármuni til að ljúka rannsóknum
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar skorar á Alþingi og ríkisstjórn að nú þegar verði skilgreindir nægir fjármunir til að ljúka rannsóknaráætlun vegna Fjarðarheiðaganga í samræmi við samgönguáætlun 2015-2018.