Í einangrun í vinnubúðum uppi á fjöllum
Ekki er talið að farþegar Norrænu hafi átt það á ættu að smitast af einstaklingi sem greindist með Covid-19 smit við sýnatöku er hann fór um borð í ferjuna á þriðjudag. Maðurinn og ferðafélagar hans fara beint í einangrun í vinnubúðir á hálendinu.Sagan af brauðinu dýra (eða ófáanlega)
„Þeir börðust, þeir börðust um brauðið og grautinn, því brauð og grautur er mannanna fæða.“ Svo orti Steinn Steinarr á sinni tíð, en þetta þykir einhverjum lýsa orðið aðstæðum á Egilsstöðum vel, því þar hafa íbúar látið vel í sér heyra á samfélagsmiðlum að undanförnu vegna skorts á brauðmeti í hillum matvöruverslana. Umræðan er þó langt því frá ný af nálinni.Átak í umferðarefirliti og bætt skráning verkefna lögreglu
Skráðum málum og verkefnum sem Lögreglan á Austurlandi hefur komið að á fyrri hluta ársins hefur fjölgað verulega ef borið er saman við undanfarin ár. Líklega er þó fyrst og fremst um að ræða áhrif af breyttri og nákvæmari skráningu verkefna, svo sem við umferðareftirlit og hraðamælingar, sem lögreglan mun á næstunni leggja sérstaka áherslu á.
Fyrsti tarfur féll eftir tvær mínútur
Hreindýraveiðar hófust í gær, en heimilt er að hefja veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Vel er fylgst með veiðunum og hvatt til þess að farið sé varlega vegna aðstæðna á veiðislóð.
Staðbundin framleiðsla í öndvegi á Djúpavogi
Kjörbúðin á Djúpavogi hóf nýlega að bjóða upp á sérmerktar framleiðsluvörur úr heimabyggð. Framleiðsla á matvörum í sveitarfélaginu og á nærliggjandi svæðum hefur færst í aukana síðustu ár og má þar til dæmis nefna matarsalt unnið úr sjó í Berufirði, sterkar sósur, byggflögur og ýmislegt fleira.
Fjölbreytt verkefni hlutu styrki á Borgarfirði
Alls hlutu fimmtán verkefni á Borgarfirði styrki úr frumkvæðissjóði Brothættra byggða fyrir sveitarfélagið í ár, en styrkveitingin fór fram á íbúafundi á dögunum. Að mati þeirra sem koma að verkefninu hefur vinnan undir hatti Brothættra byggða skilað miklum árangri nú þegar.Kviknaði í út frá eldavél
Talsverðar reykskemmdir urðu á íbúðarhúsnæði á Djúpavogi þar sem eldur kom upp rétt upp úr klukkan tíu í gærkvöldi. Húsráðandi náði sjálfur að slökkva eldinn áður en aðstoð barst.Þrír styrkir austur við aukaúthlutun úr safnasjóði
Þrjú austfirsk söfn hlutu styrki við sérstaka aukaúthlutun úr safnasjóði á dögunum. Úthlutun var flýtt til að bregðast við afleiðingum af Covid-19 faraldrinum og er styrkjunum ætlað að efla faglegt starf viðurkenndra safna, sem eru fjögur á Austurlandi.Einn með smit og fimm aðrir í einangrun á Norrænu
Þó nokkrar breytingar hafa orðið á sýnatöku hjá farþegum með Norrænu, auk þess sem nýjar reglur hafa tekið gildi er varða íslenska ríkisborgara og einnig farþega frá fjórum öðrum löndum. Við sýnatöku í Hirsthals í Danmörku greindist einn farþegi með smit og hefur hann verið í einangrun um borð ásamt ferðafélögum sínum.