Orkumálinn 2024

Einn með smit og fimm aðrir í einangrun á Norrænu

Þó nokkrar breytingar hafa orðið á sýnatöku hjá farþegum með Norrænu, auk þess sem nýjar reglur hafa tekið gildi er varða íslenska ríkisborgara og einnig farþega frá fjórum öðrum löndum. Við sýnatöku í Hirsthals í Danmörku greindist einn farþegi með smit og hefur hann verið í einangrun um borð ásamt ferðafélögum sínum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi sem send var út í dag. Norræna kemur að venju til hafnar á Seyðisfirði á morgun með 730 farþega.

Sú breyting hefur verið gerð að sýnataka af farþegum Norrænu fór nú fram í Hirtshals áður en skipið hélt þaðan á þriðjudag. Hún er gerð fyrir sóttvarnayfirvöld í Færeyjum en sýnin eru greind í Danmörku. Niðurstaða liggur því fyrir áður en komið er til hafnar í Færeyjum. Þetta þýðir meðal annars að allir sem koma hingað til lands með Norrænu frá Færeyjum hafa áður farið í sýnatöku og fengið niðurstöðu.


Sex manns í einangrun við komuna

Hér á landi liggur fyrir að farþegar frá Noregi, Danmörku, Finnlandi og Þýskalandi þurfa ekki lengur að undirgangast sýnatöku samkvæmt ákvörðun sóttvarnalæknis sem tekur gildi frá og með morgundeginum. Bætast þessi fjögur lönd við þau tvö sem áður voru talin örugg að þessu leyti, Færeyjar og Grænland. Þessar breytingar höfðu hins vegar ekki áhrif á sýnatöku þeirra sem nú eru um borð í Norrænu.

Einn þeirra farþega er fór í sýnatöku í Hirtshals reyndist með jákvætt sýni. Óvíst er hvort það er gamalt en viðkomandi ber ekki einkenni smits. Með honum í för voru fimm aðrir og eru allir í einangrun um borð. Frekari sýni munu tekin við komu hingað til lands til að staðfesta niðurstöður og munu viðkomandi verða í einangrun hér á landi meðan niðurstöðu er beðið. Aðrir farþegar um borð eru ekki taldir útsettir og munu því ekki verða fyrir áhrifum vegna þessa.


Íslendingar hlýti reglum um heimkomusmitgát

Í tilkynningu aðgerðastjórnar er vakin athygli á að frá 13. júlí tóku gildi reglur fyrir Íslendinga og þá sem búsettir eru hér á landi um svokallaða heimkomusmitgát. Í því felst að sá sem kemur erlendis frá fer í sýnatöku við komu og svo aftur fimm dögum síðar.

Í millitíðinni ber viðkomandi að gæta að eftirfarandi:
• að fara ekki á mannamót eða í veislur þar sem fleiri en tíu manns eru saman komnir
• að vera ekki í samneyti við fólk sem er í aukinni áhættu fyrir alvarleg veikindi og aðra viðkvæma hópa
• viðhalda tveggja metra reglunni í samskiptum við aðra
• að heilsa ekki með handabandi og forðast faðmlög
• að huga vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum

Hins vegar er viðkomandi heimilt, meðan smitgátin varir, að gera eftirfarandi:
• nota almenningssamgöngur til að komast á áfangastað
• fara í bíltúra
• fara í búðarferðir
• hitta vini og kunningja með ofangreindum takmörkunum

Þó þessar reglur nái eingöngu til íslenskra ríkisborgara og þeirra sem búsettir eru hér á landi eru fjölskyldur þeirra og aðrir sem hafa víðfemt tengslanet á Íslandi hvattir til að fylgja sömu reglum

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.