Seyðfirðingar fagna þrennum nýburum
Þrjú börn sem eiga foreldra frá Seyðisfirði komu í heiminn í gær. Fréttirnar glöddu Seyðfirðinga sem voru flestir staddir á Egilsstöðum eftir að hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skriðuhættu á föstudag.„Fyrir einhverja lukku erum við ekki í lífsbjörgun“
Sífellt kemur betur í ljós hve miklu mátti muna að enn verr færi þegar stór skriða féll úr Botnabrún milli Búðarár og Ljósár á Seyðisfirði á föstudag. Bærinn var rýmdur í kjölfarið en í dag fengu íbúar í hluta hans að snúa heim aftur. Verið er að koma kerfum bæjarins aftur í samt lag.Stór fleki sem hangir tæpt
„Í dag hafa sést sprungur sem ganga langt út frá stóru sprungunni. Þar virðist stór fleki hanga mjög tæpt. Skriðan er djúp og hefur skilið eftir sig hvilft í fjallinu.“ segir í skeyti frá Gunnari Gunnarssyni ritstjóra Austurfréttar sem er staddur á Seyðisfirði.Rýmingu aflétt á hluta Seyðisfjarðar í dag – Myndir
Rúmur helmingur þeirra íbúa sem yfirgaf heimili sín á Seyðisfirði í kjölfar mikilla skriðufalla á föstudag snéri heim til sín þegar það var heimilt í dag. Áfram er ítarlega fylgst með gangi mála í fjallinu ofan við bæinn.Jólaserían þokast til baka yfir Fjarðarheiðina
Stöðugur straumur hefur legið í dag til Seyðisfjarðar eftir að rýmingu var aflétt á stórum hluta bæjarins klukkan 14:30.Íbúum norðan Fjarðarár heimilt að snúa heim
Öruggt er talið að aflétta rýmingu á Seyðisfirði með öllu norðan Fjarðarár og að hluta austan hennar. Íbúar þurfa að gefa sig fram við veglokun á Fjarðarheiði. Þeir sem ekki geta snúið heim er bent á upplýsingar í fjöldahjálparmiðstöðinni á Egilsstöðum. Óviðkomandi umferð til Seyðisfjarðar er bönnuð.Vonir um að létt verði á rýmingu á Eskifirði
Vonir eru um að hægt verði að létta á rýmingu á Eskifirði, annað hvort að hluta til eða öllu leyti í dag.
Gleymum ekki móttökunum sem við fengum
Um tveir af hverjum þremur íbúum Seyðisfjarðar fengu í dag heimild til að snúa heim aftur. Hjónin Guðjón Harðarson og Hrönn Ólafsdóttir voru meðal þeirra fyrstu sem komu aftur á heimili sín. Þau segja einstaklega vel hafa tekið á móti bæjarbúum sem þurftu allir að yfirgefa bæinn á föstudag eftir aurskriður.Rýmingu aflétt á Eskifirði
Rýmingu hefur verið aflétt á Eskifirði en ríflega 160 manns þurftu að yfirgefa heimili sín þar síðdegis föstudags vegna skriðuhættu undir veginum upp í Oddsskarð.Rýmingu aflétt á hluta Seyðisfjarðar í dag
Rýmingu verður aflétt á Seyðisfirði norðan Fjarðarár í dag. Íbúar eiga von á tilkynningu um það innan tíðar. Áfram er fylgst grannt með svæðinu ofan austanverðar byggðarinnar.Neyðarstig áfram í gildi á Seyðisfirði
Neyðarstig verður áfram á Seyðisfirði og hættustig á Eskifirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.