Íbúum norðan Fjarðarár heimilt að snúa heim

Öruggt er talið að aflétta rýmingu á Seyðisfirði með öllu norðan Fjarðarár og að hluta austan hennar. Íbúar þurfa að gefa sig fram við veglokun á Fjarðarheiði. Þeir sem ekki geta snúið heim er bent á upplýsingar í fjöldahjálparmiðstöðinni á Egilsstöðum. Óviðkomandi umferð til Seyðisfjarðar er bönnuð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Unnið er að korti sem sýnir svæðið betur.

Aflétting rýmingar fyrir hluta Seyðisfjarðar hófst klukkan 14:30. Íbúar sem fá að snúa aftur eru beðnir um að gefa sig fram við vegalokun á Fjarðarheiði.

Áríðandi er að íbúar haldi sig sem mest heima við þegar þangað er komið og þar til um hægist. Íbúar sem ekki hafa bifreið til umráða gefi sig vinsamlegast fram í fjöldahjálparstöð í Egilsstaðaskóla.

Verslun á Seyðisfirði er lokuð í dag og eru íbúar sem snúa til síns heima hvattir til þess að taka vistir og aðföng með. Almenn umferð til Seyðisfjarðar er háð takmörkunum. Óviðkomandi umferð til Seyðisfjarðar er óheimil sem fyrr.

Ofanflóðasérfræðingar Veðurstofu Íslands ásamt samstarfsaðilum, hafa metið hættu á frekari skriðuföllum á Seyðisfirði. Enn er hætta á skriðuföllum á ákveðnum svæðum og verða þau áfram rýmd.

Þeir íbúar sem ekki geta snúið til síns heima geta mætt og fengið upplýsingar á fjöldahjálparstöð í Egilsstaðaskóla á Egilsstöðum.

Í ljósi þessara aðgerða hefur ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi ákveðið að færa neyðarstig almannavarna, sem verið hefur á Seyðisfirði, niður á hættustig.

Rýmingu er aflétt á eftirtöldum svæðum:
· Dalbakki
· Árbakki
· Gilsbakki
· Hamrabakki
· Fjarðarbakki
· Leirubakki
· Vesturvegur
· Norðurgata
· Ránargata
· Fjörður
· Fjarðargata
· Bjólfsgata
· Oddagata
· Öldugata
· Bjólfsbakki
· Árstígur
· Garðarsvegur
· Hlíðarvegur
· Skólavegur
· Suðurgata að Garðarsvegi
· Austurvegur að nr. 21
· Langahlíð

Auk bæjanna

· Dvergasteinn
· Sunnuholt
· Selsstaðir

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.