Gætum að sóttvörnum á Seyðisfirði og Egilsstöðum

„Með vísan til atburða á Seyðisfirði vekur aðgerðastjórn sérstaka áherslu á mikilvægi þess að við gætum í hvívetna að sóttvörnum á svæðinu öllu og ekki síst í kringum þá umferð og vinnu sem er á Seyðisfirði og á Egilsstöðum.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi. Þar segir einnig að aðgerðastjórn gerir sér grein fyrir að tilfelli koma upp þar sem slíkt er ekki mögulegt í ljósi aðstæðna en áréttar mikilvægi þess að við höfum sóttvarnir eftir sem áður ávallt í huga hvar sem við erum og hvað sem við sýslum. Að við notum grímu í matsal, að við notum grímu þegar við vinnum í hóp, að við notum grímu þegar við erum í björgunarmiðstöð og að við notum grímu í fjöldahjálparstöð.

Að við gætum einnig að fjarlægðarmörkum og að handþvotti og sprittnotkun. Við munum áreiðanlega gleyma þessu á einhverjum tímum en alltaf skulum við hafa þetta í huga og gera einfaldlega betur næst.   
 
Þá áréttar aðgerðastjórn þá kröfu sóttvarnayfirvalda að enginn utan svæðis komi til aðstoðar á Seyðisfjörð óskimaður.
 
Höldum áfram að gera þetta saman þannig að aðventan og hátíðarnar megi fara smitlausar fram og ekki síður að björgunar- og uppbyggingastarf á Seyðisfirði haldi áfram ótruflað.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.