Skúli Björnsson, framkvæmdastjóri Gróðrarstöðvarinnar Barra ehf., birti fyrir skemmstu myndband á Facebook-síðu sinni og greindi frá því að ódýrt vinnuafl hefði bæst í starfsmannaflóru fyrirtækisins. Þrjár mýs höfðu komið sér vel fyrir í vinnusalnum og söfnuðu fræjum eins og enginn væri morgundagurinn.
Dýrasta árskortið í sund er á Fljótsdalshéraði og það þriðja dýrasta í Fjarðabyggð. Í Fjarðabyggð er einnig að finna dýrustu stöku stundmiðana fyrir fullorðna.
Tveir almennir upplýsingafundir verða haldnir í Fjarðabyggð í dag um jarðhræringarnar í Bárðabungu og eldgosið í Holuhrauni í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, en Austurland er það landsvæði sem hvað oftast hefur þurft að glíma við SO2 gasmengunina frá Holuhrauni.
„Kröfur okkar eru bæði sanngjarnar og eðlilegar. Grundvallaratriði er að fólk geti framfleytt sér og sínum af dagvinnulaunum í stað þurfa að treysta á yfirvinnu, aukavinnu og akkorð," segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður AFLs Starfsgreinafélags á Austurlandi.
Umfangsmikilrannsókn á svefnvenjum Íslendinga og tengslum við heilsufar og lífsgæði er hafin. Bréf hafa verið send á tíu þúsund einstaklinga um allt land og leynast því þó nokkrir þátttakendur hér fyrir austan.
Kubbafabrikkan er nútímaleg og nýstárleg arkitektastofa sem opnaði í haust og er staðsett í Kaupmannahöfn í Danmörku og Seyðisfirði á Íslandi. Stofan leggur mikla áherslu á sjálfbæra og vistvæna hönnun og helsta markmið fabrikkunnar er að stuðla að grænni plánetu með tækni úr fremstu röð.
Guðrún Áslaug Jónsdóttir og Signý Ormarsdóttir hafa verið ráðnar sem yfirverkefnastjórar Austurbrúar. Þær voru báðar starfsmenn Austurbrúar fyrir en þessar ráðningar eru í samræmi við nýtt skipurit Austurbrúar sem samþykkt var á framhaldsársfundi stofnunarinnar í haust. Breytingarnar hafa ekki för með sér fjölgun starfsmanna hjá Austurbrú.
Viðskiptavinir verslana eru löngu orðnir vanir að posinn snúi að þeim sem verslar, sem staðfestir þar kortagreiðslur með pin-númeri í stað undirskriftar. Korthafar sem muna ekki pinnið hafa hingað til getað staðfest greiðslur með því að ýta á græna takkann á posanum. En ekki lengur.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum í gær að hætta skólahaldi á Hallormsstað. Unnið verður að nýjum samningi um samstarf við Fljótsdalshrepp um samstarf í skólamálum.
Eldgosið í Holuhrauni gæti staðið í meira en ár í viðbót. Sérfræðingar fylgjast nú betur með uppsöfnun gosefna í snjó í nágrenni eldstöðvanna sem haft gætu áhrif á umhverfið þegar snjóa leysir í vor.
Einn + níu, lið Grunnskóla Reyðarfjarðar sigraði í tækni-og hönnunarkeppni grunnskólanema FIRST LEGO League á laugardaginn var. Alls tóku þrjú lið frá grunnskólum Fjarðabyggðar þátt í keppninni í ár, eða frá Grunnskóla Eskifjarðar, Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.