Búið er að opna fyrir umsóknir á hreindýraveiðar fyrir veiðitímabil 2015. Heimilt verður að veiða 1412 hreindýr á árinu sem er mesti hreindýrakvóti frá upphafi. Undanfarin ár hefur ásókn í hreindýraveiðileyfi farið vaxandi en undanfarin ár hafa umsóknir verið mun fleiri en leyfin.
Fjármálastjóri Launafls segir að tryggingagjald leggjast af miklu afli á meðalstórt fyrirtæki á landsbyggðinni eins og Launafl. Fjármunir sem fari í tryggingagjaldið nýtist ekki í frekari uppbyggingu fyrirtækisins á meðan.
Nýtt tæki til að kurla trjávið var gangsett í fyrsta sinn á Hallormsstað síðastliðinn föstudag. Tækið er margfalt öflugra en eldri kurlari sem þar hefur verið í notkun.
Rekstur LungA skólans á Seyðisfirði hefur verið tryggður næstu tvö árin eftir að verkefnið fékk tuttugu milljóna króna styrk úr æskulýðsáætlun Evrópusambandsins. Annar skólastjóra skólans segir styrkinn efla undirstöðurnar.
Kvenfélagið Vaka á Djúpavogi lét heldur betur til sín taka á nýliðnu ári eins og svo mörg undanfarin ár. Árið 2014 lagði kvenfélagið rúmlega eina miljón króna til samfélagsins á Djúpavogi.
Markaðsstofur landshlutanna standa fyrir viðburðinum Mannamót 2015 sem fer fram á morgun. Mannamótum er ætlað að mynda og efla tengsl á milli ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi og auka dreifingu ferðamanna um landið allt.
Föstudaginn 16. janúar síðastliðin skrifuðu skólastjórnendur leik- og grunnskóla á Austurlandi undir viljayfirlýsingu um bættan námsárangur, með sérstakri áherslu á læsi og stærðfræði.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra, gerði lykkju á leið sína í ferð þegar hún var á Egilsstöðum í síðustu viku og kynnti sér Fab Lab-stofu Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað.
Gert er ráð fyrir að sjötíu milljónum verði varið í frekari rannsóknar fyrir Fjarðarheiðargöng á þessu ári. Seyðfirðingar fagna því að verkið haldi áfram.
Í kvöld byrjar þriggja daga fundaferð á vegum sveitarfélagsins Fjarðabyggðar í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins undir yfirskriftinni „Fjarðabyggð til framtíðar." Það verður stefna sveitarfélagsins í ýmsum málaflokkum rædd með íbúum. Bæjarstjórinn segir vilja til að nýta betur þá krafta sem sveitarfélagið bjóði upp á.
Lesendur Austurfréttar völdu Tinnu Rut Guðmundsdóttur frá Reyðarfirði sem Austfirðing ársins 2014. Hún sagði í Austurglugganum í lok nóvember frá áralangri baráttu sinni við átröskun. Hún segir viðurkenninguna mikinn heiður sem hjálpi henni við að halda réttri stefnu.