Tveir útaf í Óseyrarbrekku í gær: Aðstæður voru mjög hættulegar - myndir
Tveir bílar fóru útaf í sömu brekkunni í sunnanverðum botni Stöðvarfjarðar í gær sem oft er kölluð Óseyrarbrekkan. Aðstæður voru mjög hættulegar.Bestu hrútlömbin frá Sléttu og Bustarfelli
Bændur á Sléttu í Reyðarfirði og Bustarfelli í Vopnafirði áttu hæst dæmdu austfirsku hrútlömbin síðasta haust. Sérfræðingur í sauðfjárrækt segir lambadóma hafa verið glæsilegri í haust en nokkru sinni áður.Fólk er enn að stelast í Selárlaug utan opnunartíma: Mér finnst þetta ömurlegt
Selárlaug hefur lengi verið einn af gimsteinum Vopnafjarðar. Lengi vel var aðgengi að lauginni allan sólarhringinn allan ársins hring, en það breyttist á síðasta ári þegar gerðar voru breytingar bæði á húsnæði og rekstri sundlaugarinnar þar sem hún uppfyllti engan vegin kröfur heilbrigðiseftirlitsins. Flestum hefur gengið vel að aðlagast þessum breytingum, en þó eru enn óprúttnir aðilar sem eru enn að lauga sig utan opnunartíma.Á þriðja tug kannabis planta gerðar upptækar á Austurlandi
Lögreglan á Austurlandi lagði hald á þriðja tug kannabis platna í fyrradag. Ræktunin sem var í heimahúsi var gerð upptæk. Auk efnanna lagði lögregla hald á ræktunarbúnað og lítilsháttar af öðrum efnum.Lögreglan staðfesti þetta í samtali við Austurfrétt í dag en ekki fékkst uppgefið hvar á Austurlandi þetta var. Málið telst upplýst.
„Samstarf fólks við lögregluna hefur oft skilað miklu. Þess vegna hvetjum við hvern og einn að vera á varðbergi ef það veit um eitthvað svona og láta lögreglu vita um hæl," segir Elvar Óskarsson, fulltrúi hjá lögreglunni á Austurlandi.