Austfirðingar í umfangsmikilli rannsókn á svefnvenjum: Mikilvægt að sem flestir taki þátt

Sofandi konaUmfangsmikilrannsókn á svefnvenjum Íslendinga og tengslum við heilsufar og lífsgæði er hafin. Bréf hafa verið send á tíu þúsund einstaklinga um allt land og leynast því þó nokkrir þátttakendur hér fyrir austan.

Að rannsókninni stendur þverfaglegt teymi sálfræðinga, lyfjafræðinga og lífeðlisfræðinga við Háskóla Íslands. Þátttakendur voru valdir af handahófi úr Þjóðskrá og felst verkefni þeirra í því að svara spurningalista rafrænt. Til þess að rannsóknin skili árangri er mikilvægt að sem flestir taki þátt.

Sofum minna en aðrir

Til þessa hafa rannsóknir sýnt að Íslendingar fara seinna að sofa en jafnaldrar í nágrannalöndum og sofa u.þ.b. klukkutíma skemur. Í nýlegri rannsókn Embættis landlæknis kemur fram að allt að fjórðungur einstaklinga eldri en 18 ára sefur að jafnaði innan við 6 klst. á nóttu sem er talið hafa skaðleg áhrif á heilsu.

Í rannsókninni nú verður lögð áhersla á að greina dægurgerð einstaklinga og meta áhrif á heilsufar og lífsgæði. Dægurgerð er hugtak sem lýsir kjörsvefntíma einstaklingsins á sólarhringnum; morgungerð fer snemma að sofa og vaknar árla morguns (morgunhani) en kvöldgerð fer seint að sofa og á vaknar seint (nátthrafn). Þegar skoðuð eru eldri gögn kemur í ljós að dægurgerð ungra Íslendinga (1-30 ára) er að jafnaði seinkuð, en seinkunin er áberandi mest hjá aldurshópnum 16-19 ára.

Morgunhanar og nátthrafnar

Þeir sem eru með seinkaða dægurgerð ná ekki fullum svefni á virkumdögum.Ýmsir þættir geta stuðlað að þessu, t.d. mikil tækjanotkun á kvöldin (skjábirtan) en einnig er talið að of fljót klukka geti átt hlut að máli. Þannig er því einmitt háttað hér á landi, þar sem árið1968 var samþykkt að hætta að skiptaá milli sumar­og vetrartíma og festa skyldi staðarklukkuna á miðtímaGreenwich sem er einu tímabelti austar en Ísland.Þetta þýðir að árið um kring er sólarupprás,hádegi og sólarlag á Íslandi klukkutíma seinna en náttúruleg klukka segir til um. Morgunbirtan er bráðnauðsynleg til að stilla lífklukkuna eins og áður sagði og hún er klukkutíma seinna á ferðinni. Það ýtir sterklega undir þá tilhneigingu að seinka svefntímanum. Þetta væri sök sér ef við gætum valið hvenær við vöknum, en svo er auðvitað ekki á virkum dögum, þegar vakna þarf til skóla eða vinnu. Afleiðingin er mögulega styttri svefn sem getur haft alvarlegar afleiðingar. Í rannsókninni verður leitast við að meta áhrif seinkaðrar dægurgerðar á ýmsa þætti auk almenns heilsufars, m.a. mætingu og frammistöðu í skóla, matar- og neysluvenjur, hreyfingu o.fl.

Mikilvægt að að taka þátt

Rannsakendur hvetja alla þá sem fengið hafa boðsbréf til að taka þátt og svara spurningalistanum. Um er að ræða afar mikilvæga gagnasöfnun þar sem hægt verður í fyrsta sinn að kortleggja svefnvenjur Íslendinga á breiðu aldursbili alls staðar af landinu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar