Óskilamunir helgarinnar á tískusýningu Afréttarans
„Við köllum þetta kvöld Afréttarann, en þar kemur saman starfsfólkið okkar sem hefur unnið baki brotnu um helgina, já og heimamenn sem og allir aðrir sem vilja,“ segir Kristján Geir Þorsteinsson, verti í Fjarðaborg, um árlega tískusýningu óskilamuna Bræðsluhelgarinnar sem hefur undanfarin ár verið haldin á sunnudagskvöldi eftir Bræðslu.
Göngukonan fundin
Göngukona sem leitað hafði verið að í sunnan verðum Seyðisfirði frá því um klukkan átta í kvöld fannst um klukkan hálf tólf í kvöld. Hún var þokkalega á sig komin og treysti sér til að labba með leitarfólki til byggða.Sóknarfæri í að selja fólki sem aldrei hefur búið úti á landi hugmyndina um að flytja
Sóknarfæri kann að vera fyrir landsbyggðina að bjóða til sín ungu fólki sem er að sligast undan háu húsnæðisverði á höfuðborgarsvæðinu. Erfitt sé þó oft að kynna landsbyggðina fyrir þeim sem ekki hafa alist þar upp.Spurði hvort holan næði alla leið
Vegurinn til Borgarfjarðar er óvenju slæmur og lítið hægt að laga hann fyrr en þornar. Oddvitinn segir að ekkert nema bundið slitlag lagi veginn til frambúðar.
Gönguhópurinn kominn fram
Göngurhópur á leið til Borgarfjarðar, sem björgunarsveitir á Austurlandi hafa verið að grennslast fyrir um vegna þoku og leiðnda veðurs á svæðinu, kom fram á eðlilegum stað miðað við gönguleiðina sem hann var á.Leitað að villtri göngukonu í Seyðisfirði
Búið er að kalla út björgunarsveitir víða af Austurlandi til að leita að konu sem villtist í þoku í Seyðisfirði í kvöld.
Gjaldfrjáls námsgögn í Fjarðabyggð
Námsgögn í grunnskólum Fjarðabyggðar verða gjaldfrjáls frá og með nýju skólaári. Reiknað er með að kostnaður sveitarfélagsins nemi 3-4 milljónum króna á ári.
Óhöppin gerast líka í góðu veðri
Austfirskar björgunarsveitir voru kallaðar þrisvar út á fjórum dögum í síðustu viku vegna göngufólks sem lent hafði í villu. Brýnt er fyrir göngufólk að huga að veðurspám og útbúnaði áður en farið er af stað.
Bráðkvaddur undir stýri
Eldri karlmaður varð bráðkvaddur undir stýri á Fjarðarheiði á þriðjudag. Vegfarendur sem komu að bíl hans utan vegar reyndu endurlífgun en þær tilraunir báru ekki árangur. Hann var einn á ferð.
Rétt að huga í fullri alvöru að Fjarðarheiðargöngum
Formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vill að aukinn kraftur verði settur í undirbúning ganga undir Fjarðarheiði. Þau muni efla mannlíf á Seyðisfirði.
Fimmtungi færri bátar á strandveiðum
Fimmtungi færri bátar stunda strandveiðar á svæði C, frá Þingeyjarsveit til Djúpavogshrepps, heldur en í fyrra. Lægra verð á fiskmörkuðum og meiri eftirspurn eftir vinnuafli í landi eru helstu skýringarnar að mati formanns Landssambands smábátasjómanna.