Dæmd í fangelsi fyrir fíkniefnaakstur
Héraðsdómur Austurlands dæmdi í síðustu viku konu á fertugsaldri í 30 daga fangelsi fyrir að hafa keyrt bíl undir áhrifum fíkniefna. Konan á að baki langan brotaferil.Samstarfsnefndin strax fengið aukinn aðgang að þingmönnum
Talsmenn þeirra fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi sem standa nú í sameiningarviðræðum segja strax vera farið að sjást að sameinað sveitarfélag muni hafa aukinn slagkraft til að tryggja framgang hagsmunamála fremur en hvert sveitarfélaganna fyrir sig í dag. Háskólamenntun, fasteignagjöld og umhverfi ungs fólks í nýju sveitarfélagi var meðal þess sem rætt var um á fjölsóttum íbúafundi um mögulega sameiningu á Egilsstöðum í gær.Segja ráðherra hafa heitið fé til hönnunar Fjarðarheiðarganga
Bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs og oddviti Borgarfjarðarhrepps eru sammála um að samgönguráðherra hafi ótvírætt látið í það skína að lokið verði við hönnun Fjarðarheiðarganga á næstu tveimur árum.Ingibjörg í framboð til ritara VG
Ingibjörg Þórðardóttir, varaþingmaður og kennari við Verkmenntaskóla Austurlands, hefur tilkynnt að hún bjóði sig fram til ritara Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins eftir rúma viku.Sameiningarmál: Liggur fyrir að fólk mun ekki missa vinnuna
Sameining Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðarhrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar og Djúpavogshrepps gengur ekki út á stórkostlega hagræðingu heldur betri nýtingu á fólki að sögn talsmanna samstarfsnefndar sveitarfélaganna. Hafnarmál, vald heimamanna og ýmsar framkvæmdir voru meðal þess sem rætt var um á íbúafundi á Seyðisfirði í aðdraganda sameiningarkosninga.Norðfjarðará hjó í veginn inn í Fannardal
Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa í dag unnið að því að verja nýja veginn inn í Fannardal eftir að Norðfjarðará hjó skarð í vegöxl fyrr í dag.Sköpunarmiðstöðin og Fjarðabyggð í samstarf
Sköpunarmiðstöðin á Stöðvafirði og sveitafélagið Fjarðabyggð skrifuðu undir samstarfssamning síðastliðin sunnudag. Samningurinn felur í sér að sveitafélagið og ríkið styrki endurbætur á Sköpunarmiðstöðinni.
Tóku málin í sínar hendur austur í rassgati
Pönk og rokktónleikahátíðin Orientu Im Culus eða Austur í Rassgati verður haldin í annað sinn í Egilsbúð þann 19. október 2019. Dagskráin í ár er ekki af verri endanum og tónleikahaldarar lofa miklu stuði og pönki.
SÚN byggir útsýnispall við Norðfjarðarvita
Á dögunum samþykkti Samvinnufélag útgerðamanna Neskaupstað að hefja framkvæmdir við útsýnispall við Norðfjarðarvita. Fyrirverandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Páll Björgvin Guðmundsson fékk hugmyndina eftir að hann áttaði sig á möguleikum svæðisins.
Egilsbúð verður að alvöru félagsheimili
Í dag fer fram uppboð á rúmum og skápum í Egilsbúið. Verið er að rýma út úr gömlu hótelherbergjunum svo hægt verði að skapa ný rými sem nota á í félagsstarf.