Jólaland þar sem áður var hárgreiðslustofa
Fyrrum húsnæði hárgreiðslustofunnar Exító í verslunarmiðstöðinni Molanum í Reyðarfirði tekur á sig mynd jólalands þar sem tónlistarmenn flytja jólalög um helgina. Forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar segir að þörf hafi verið á að finna nýjar leiðir til að flytja lifandi tónlist á tímum samkomubanns.Dæmdur fyrir að sparka í höfuð lögreglumanns
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í 90 daga skilorðsfundið fyrir að sparka í höfuð lögreglumanns við skyldustörf. Maðurinn glímdi við andlega erfiðleika þegar atvikið átti sér stað.Áfram svipaðar reglur
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands vekur athygli á nýjum sóttvarnareglum sem heilbrigðisráðherra kynnti í dag og taka gildi á fimmtudag.Halli á rekstri A-hluta Mulaþings vegna COVID
Halli verður á rekstri A-hluta Múlaþings á næsta ári upp á 251 milljón kr. Hinsvegar verður lítilsháttar afgangur á samanteknum rekstri A og B hluta eða 5 milljónir kr., að því er segir á vefsíðu Múlaþings.Rafeyri kaupir Rafmagnsverkstæði Andrésar
Fyrirtækið Rafeyri frá Akureyri hefur keypt Rafmagnsverksvæði Andrésar á Eskifirði. Gert er ráð fyrir að verkstæðið verði að mestu rekið með óbreyttum hætti.Falla frá eldi við Háubakka
Fiskeldi Austfjarða ætlar að falla frá eldissvæði undir Háubökkum, innarlega í Seyðisfirði. Fyrirtækið hefur sótt um leyfi til að ala 10 þúsund tonn af laxi í firðinum.Óánægja Seyðfirðinga kemur ekki óvart
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Múlaþings, tók í dag á móti undirskriftum um 280 Seyðfirðinga þar sem mótmælt er áformum um 10 þúsund tonna laxeldi á vegum Fiskeldis Austfjarða í firðinum. Hann segir mótmælin styðja við gagnrýni nefnda sveitarfélagsins um skort á samráði um eldið.Skóli til sölu hjá Fjarðabyggð
Fjarðabyggð hefur auglýst eignir til sölu á vefsíðunni sinni. Meðal eignanna er fyrrum skólahúsnæði að Kirkjumel á Norðfirði.Jólasíld SVN í ár sögð sú besta að venju
„Fólk segir í ár að síldin sé sú besta. Það höfum við heyrt áður og það sýnir að við erum alltaf á réttri leið. Ég tel að jólasíldin í ár sé algjört ljúfmeti og hún er í reynd lokapunkturinn á frábærlega vel heppnaðri síldarvertíð,“ segir Jón Gunnar Sigurjónsson yfirverkstjóri hjá Síldarvinnslunni (SVN) í spjalli á vefsíðu fyrirtækisins.