Áfram svipaðar reglur

Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands vekur athygli á nýjum sóttvarnareglum sem heilbrigðisráðherra kynnti í dag og taka gildi á fimmtudag.

Helstu breytingar lúta að fjöldatakmörkunum barna og grímuskyldu þeirra, að sund- og baðstöðum, veitingastöðum og verslunum, íþróttaiðkun, menningarviðburðum og jarðaförum. Í öllum tilvikum er um lítilsháttar rýmkun reglna að ræða.

Reglurnar gilda til 12. janúar 2021. Þær má sjá í heild sinni á vef stjórnarráðsins.

Sem fyrr er ekkert virkt Covid-19 smit á Austurlandi og enginn í sóttkví.

„Ljóst er miðað við daglegar tölur um fjölda smitaðra að þær reglur sem haldnar hafa verið í heiðri síðustu mánuði eru jafn áríðandi og áður. Að halda tveggja metra fjarlægð er jafn mikilvægt og fyrr, nota grímu þar sem hún er áskilin og gæta að handþvotti og sprittnotkun. Gerum þetta saman og komumst heil heim. Áfram við,“ segir í tilkynningunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.