Íbúafundur fyrir Seyðfirðinga haldinn í dag
Íbúafundur fyrir íbúa Seyðisfjarðar veður haldinn á Facebook í dag, miðvikudag, og hefst klukkan 15:00.Ákvörðun um frekari rýmingu á Seyðisfirði í kvöld
Veðurstofan er nú við mælingar og vettvangsskoðun í hlíðum Seyðisfjarðar. Gert er ráð fyrir að unnið verði úr þeim gögnum í dag og niðurstaða liggi fyrir síðar í dag eða í kvöld.Fyrsta bólusetningin gegn COVID á hádegi á Egilsstöðum
Fyrsta bólusetningin gegn COVID á Austurlandi verður á hádegi í heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum. Fyrstu 170 skammtarnir af bólefninu komu til Egilsstaða með flugi í morgun.Búið að ryðja að Silfurhöllinni
Búið er að ryðja Hafnargötu, veginn út í gegnum Seyðisfjörð, að húsinu sem áður stóð á lóð númer 28 og kallaðist Silfurhöllin. Þar þykknar skriðan.Eigendur húsa við fjórar götur á Seyðisfirði geta snúið aftur
Eigendur húsa við fjórar götur á Seyðisfirði geta snúið aftur í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Bólusetning hafin á Austurlandi
Þórarinn Baldursson, læknir hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands, varð á hádegi fyrstur Austfirðingur til að vera bólusettur gegn Covid-19 veirunni.Hreinsunarstarf hafið á Seyðisfirði
Hreinsunarstarf eftir aurskriðurnar á Seyðisfirði er hafið í þessum skrifuðu orðum. Jens Hilmarsson vettvangsstjóri á Seyðisfirði segir að fjórir hópar muni vinna skipulega að hreinsun bæjarins í allan dag.Líst ljómandi vel á loðnuleitartúrinn
Daði Þorsteinsson skipstjóri á Aðalsteini Jónssyni SU segir að sér lítist ljómandi vel á loðnuleitartúrinn sem skipið fer í strax eftir áramótin.Fyrsta áfanga bólusetningar lýkur á morgun
Bólusetning hófst á Austurlandi í dag. Allir íbúar hjúkrunarheimila verða bólusettir í þessari fyrstu umferð auk nokkurra aldraðra utan heimilanna, allt eftir reglum og skipulagi þar um. Þá eru framlínustarfsmenn Heilbrigðisstofnunar Austurlands í forgangshópi. Gert er ráð fyrir að bólusetningu í þessum fyrsta áfanga ljúki á morgun.