Íbúafundur fyrir Seyðfirðinga haldinn í dag

Íbúafundur fyrir íbúa Seyðisfjarðar veður haldinn á Facebook í dag, miðvikudag, og hefst klukkan 15:00.


Á vefsíðu Seyðisfjarðar segir að tilgangur fundarins er að upplýsa íbúa Seyðisfjarðar um stöðu mála. Fundurinn fer fram í gegnum Facebooksíðu Múlaþings https://www.facebook.com/mulathing

Íbúar geta sent inn spurningar fyrir fundinn á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Hægt verður að fylgjast með fundinum á skjá í Herðubreið og í Egilsstaðaskóla fyrir þá sem þess óska.
 
Dagskrá:
Stutt innlegg frá eftirfarandi aðilum:
Björn Ingimarsson, sveitastjóri Múlaþings
Jens Hilmarsson, formaður vettvangsstjórnar
Hugrún Hjálmarsdóttir, framkvæmda- og umhverfismálastjóri Múlaþings
Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands
Júlía Sæmundsdóttir, félagsmálastjóri Múlaþings
Fulltrúi þjónustumiðstöðvar almannavarna í Herðubreið
Tómas Jóhannesson, sérfræðingur frá Veðurstofunni
Jón Haukur Steingrímsson, sérfræðingur frá Eflu
 
Í lokin verður samantekt á ensku og pólsku og síðan verður spurningum svarað.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.