Íbúafundur fyrir Seyðfirðinga haldinn í dag
Íbúafundur fyrir íbúa Seyðisfjarðar veður haldinn á Facebook í dag, miðvikudag, og hefst klukkan 15:00.Á vefsíðu Seyðisfjarðar segir að tilgangur fundarins er að upplýsa íbúa Seyðisfjarðar um stöðu mála. Fundurinn fer fram í gegnum Facebooksíðu Múlaþings https://www.facebook.com/mulathing
Íbúar geta sent inn spurningar fyrir fundinn á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Hægt verður að fylgjast með fundinum á skjá í Herðubreið og í Egilsstaðaskóla fyrir þá sem þess óska.
Dagskrá:
Stutt innlegg frá eftirfarandi aðilum:
Björn Ingimarsson, sveitastjóri Múlaþings
Jens Hilmarsson, formaður vettvangsstjórnar
Hugrún Hjálmarsdóttir, framkvæmda- og umhverfismálastjóri Múlaþings
Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands
Júlía Sæmundsdóttir, félagsmálastjóri Múlaþings
Fulltrúi þjónustumiðstöðvar almannavarna í Herðubreið
Tómas Jóhannesson, sérfræðingur frá Veðurstofunni
Jón Haukur Steingrímsson, sérfræðingur frá Eflu
Í lokin verður samantekt á ensku og pólsku og síðan verður spurningum svarað.