Fyrsta áfanga bólusetningar lýkur á morgun

Bólusetning hófst á Austurlandi í dag. Allir íbúar hjúkrunarheimila verða bólusettir í þessari fyrstu umferð auk nokkurra aldraðra utan heimilanna, allt eftir reglum og skipulagi þar um. Þá eru framlínustarfsmenn Heilbrigðisstofnunar Austurlands í forgangshópi. Gert er ráð fyrir að bólusetningu í þessum fyrsta áfanga ljúki á morgun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi. Þar segir einnig að engin greind COVID-19 smit eru á Austurlandi.

"Aðgerðastjórn hvetur til þess að ýtrustu aðgæslu sé gætt í aðdraganda áramóta, við meðferð flugelda en ekki síður í samskiptum okkar íbúa á milli vegna sóttvarna. Á það sérstaklega við nú þegar glíman stendur við náttúruhamfarir ofan í farsótt. Munum því fjöldatakmörkin góðu, tveggja metra regluna, handþvottinn og sprittnotkunina. Síðast en ekki síst að ef upp koma veikindi að halda sig heima og hafa samband við heilsugæslu eða síma 1700 vegna sýnatöku," segir í tilkynningunni.

"Gleðjumst yfir áramótin með okkar nánustu, þökkum það liðna og hlökkum til þess sem framundan er."

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.