Rafrænir flugeldar og kertafleyting á Lóninu

Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði hvetur landsmenn til að kaupa rafræna flugelda til styrktar sveitinni í ár. Einnig er ætlunin að í stað flugeldasýningar á Seyðisfirði um áramót verði kertum fleytt við Lónið.

Fjallað er um málið á Facebook síðu björgunarsveitarinnar. Þar segir að í kjölfar aurskriðanna á Seyðisfirði hefur verið unnið hörðum höndum að því að færa samfélagið og innviði þess þar aftur til fyrra horfs. Jafnframt hefur verið ákveðið að í stað hefðbundinna flugeldasprenginga um áramót verði heimafólki hlíft við slíkum hljóðum, en að þess í stað verði kertum fleytt við Lónið.

Sem kunnugt er hefur sala á flugeldum verið ein helsta fjáröflunarleið björgunarsveitanna í landinu og við þær aðstæður er nú ríkja hefur verið efnt til sölu á rafrænum flugeldum á slóðinni aramot.is sem hýsir meðal annars. síðasta dagskrárlið RÚV á árinu, þvívíddarviðburðinn ÁRAMÓTASPRENGJUNA 2020 þar sem margt af fremsta tónlistarfólki landsins kemur fram í nýjum ham og það í gagnvirku samspili við áhorfendur. Má þar nefna Sigur Rós, Kaleo, Stuðmenn, Bríeti, Friðrik Dór, Auði og fleira tónlistarfólk.

"Það er stórkostlegt að fá þennan stuðning, þar sem þetta verður okkar eina flugeldasala í ár. Við vonum að allir fari á aramot.is og taki þátt í þesssum nýstárlegu áramótum sem verður sjónvarpað á RÚV", sagði Helgi Haraldsson, formaður björgunarsveitarinnar Ísólfs á Seyðisfirði.

Rafrænu flugeldarnir eru fáanlegir í nokkrum verðflokkum frá kr. 1.000 til kr. 5.000 og renna allar tekjur af sölu þessara grænu og umhverfisvænu flugelda beint inn á reikning björgunarsveitarinnar Ísólfs.
.
Þá segir að Áramótasprengjan er áramótafagnaðar í nýrri vídd, fyrsti sinnar tegundar í heiminum og fyrsta gagnvirka sjónvarpsútsendingin. Íslensku þjóðinni býðst að sameinast yfir áramótin og taka raunverulegan þátt í beinni útsendingu sem sinni eigin sýndarveru þeim að kostnaðarlausu. Einfalt er að skrá sig og allir geta tekið þátt á aramot.is.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.