Vinna við að móta farveg Búðarár á Seyðisfirði
Hreinsunarstarf á Seyðisfirði gengur vel. Unnið er að því að móta farveg Búðarár auk þess sem verið er að hanna varnargarð við Fossgötu. Starfsmenn Veðurstofu hafa verið við mælingar og verða athuganir þeirra og niðurstöður ræddar í dag.Heimastjórn þakkar öllum frábærlega vel unnin störf
Heimastjórn Seyðisfjarðar þakkar öllum þeim fjölmörgu sem komið hafa að björgunarstörfum á Seyðisfirði fyrir frábærlega vel unnin störf.Borgarfjörður aðeins með 15 tonna byggðakvóta
Borgarfjörður eystri fékk aðeins úthlutað 15 tonna almennum byggðakvóta. Hefur þessi kvóti minnkað ár frá ári á undanförnum árum, að því er segir í fundargerð frá síðasta fundi heimastjórnar Borgarfjarðar eystri.Mastur brotnaði og umferðarskilti skemmdust um helgina
Mastur Vegagerðarinnar í Hvalnesskriðum sem á voru tvær myndavélar og þrjár sólarsellur brotnaði í ofsaveðri sem gekk yfir Austfirði um helgina. Fjölmörg umferðarskilti fuku á hliðina eða skemmdust á þessum slóðum.Þórunn Egilsdóttir lætur af þingmennsku
„Framboð til Alþingis verður hins vegar að bíða betri tíma. Ég mun því ekki gefa kost á mér til að leiða lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum.“Ekkert bólusett eystra í þessari umferð
Ekkert af því bóluefni Moderna, sem kom til landsins í morgun, verður dreift á landsbyggðinni. Búist er við að meira af bóluefninu muni berast til lands reglulega á næstu vikum.Tekjulágir geta sótt um COVID barnastyrk
Meðal aðgerða stjórnvalda vegna COVID er styrkur sem hægt er að sækja um til sveitarfélaga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005–2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars–júlí 2020.Vinnsla hafin í frystihúsi SVN á Seyðisfirði
Í morgun hófst vinnsla í frystihúsi Síldarvinnslunnar (SVN) á Seyðisfirði en hún féll niður þegar stóra skriðan féll þar 18. desember sl.