Vinnsla hafin í frystihúsi SVN á Seyðisfirði
Í morgun hófst vinnsla í frystihúsi Síldarvinnslunnar (SVN) á Seyðisfirði en hún féll niður þegar stóra skriðan féll þar 18. desember sl.
Fjallað er um málið á vefsíðu SVN þar sem rætt er við Ómar Bogason hjá frystihúsinu. „Jú, það má með sanni segja að fólk er afskaplega ánægt með að lífið sé aftur að færast í fyrra horf," segir Ómar.
"Við fengum heitt vatn frá fjarvarmaveitunni í húsið í gær og þá var hafist handa við að þrífa og allt var gert spikk og span. Gullver NS kom síðan í morgun með tæp 100 tonn af blönduðum afla þannig að ekki skortir hráefnið."
Fram kemur í máli Ómars að nú landar Gullver við fiskvinnslubryggjuna en síðast þurfti hann að landa við Strandarbakka vegna þess að ekki var fært í gegnum skriðuna.
"Fyrstu dagana verður starfsfólkið flutt með rútu í gegnum skriðusvæðið að frystihúsinu, en reynt er að takmarka umferðina þar sem mest vegna þess að unnið er að því að breikka veginn í gegn og hreinsa svæðið,“ segir Ómar.
Mynd: Ómar Bogason.