Glæsilegir sigrar
Fjarðabyggð vann mikilvægan sigur á HK á útivelli í dag í toppbaráttu 1. deildar karla. Huginn tryggði sér sæti í úrslitakeppni þriðju deildar og Höttur á að vera laus við fallbaráttuna eftir sigur á KS/Leiftri.
Fjarðabyggð vann mikilvægan sigur á HK á útivelli í dag í toppbaráttu 1. deildar karla. Huginn tryggði sér sæti í úrslitakeppni þriðju deildar og Höttur á að vera laus við fallbaráttuna eftir sigur á KS/Leiftri.
Íbúar á Austurlandi eru nú 12.649 samkvæmt miðársmannfjöldatölum Hagstofunnar frá 1. júlí síðastliðnum. Á landinu öllu varð mest fækkun á Austurlandi milli ára, eða um 1.137, eða um 8,2% frá sama tíma í fyrra. Íbúum fjórðungsins hefur fjölgað um þúsund og fimm manns frá árinu 2002 fyrir framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun og eru jafnframt 600 fleiri nú en árið 1999. Hæst varð íbúatala á Austurlandi árið 2007 þegar yfir 15.500 íbúar voru skráðir í fjórðungnum.
Í kvöld verður sýndur fyrri þáttur af tveimur af Reykjavík-Egilsstaðir-Reykjavík á sjónvarpsstöðinni ÍNN.
Veður er nú afar slæmt norðan Vatnajökuls og beinir Slysavarnafélagið Landsbjörg þeim tilmælum til ferðafólks að vera ekki á ferð þar nema brýna nauðsyn beri til. Leitað hefur verið aðstoðar björgunarsveita vegna ferðafólks af svæðinu, m.a. var göngumaður nálægt Gæsavötnum í vandræðum, óttast var um hjólreiðamann í Dyngjufjalladal og fólk sat fast í bíl við Kistufell.
Kraftakeppnin Austfjarðatröllið hefst á morgun og stendur til laugardags.
Í fjölbreyttum Austurglugga vikunnar er meðal annars rætt við Akitsinnguaq Olsen, þingmann og formann álversnefndar grænlenska þingsins, um framvindu álvershugmynda Alcoa á Grænlandi og Sigurð Guðmundsson myndlistarmann um nýtt höggmyndaverk hans á Djúpavogi. Myndir og umfjöllun eru um Austfjarðatröll, Ormsteiti og sumar á Seyðisfirði og fjallað um skólaárið sem nú er að hefjast. Þetta og margt annað í Austurglugganum, sem fæst á öllum betri blaðsölustöðum.
Rafmagnslaust varð víða á Austurlandi í gær í um tvær klukkustundir eftir að eldingu laust niður í raflínu yfir Öxi.
Vertar á austfirskum veitingahúsum eru ánægðir með tekjur sumarsins. Erlendir ferðamenn virðast láta meira eftir sér í kjölfar gengisfalls íslensku krónunnar.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.