Reykjavík-Egilsstaðir-Reykjavík
Umræðan • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • 12. ágúst 2009
Í kvöld verður sýndur fyrri þáttur af tveimur af Reykjavík-Egilsstaðir-Reykjavík á sjónvarpsstöðinni ÍNN.
Flugmennirnir Árni Árnason og Snorri Bjarnvin Jónsson heimsóttu Austurland í síðustu viku og fóru víða. Þeir heimsóttu meðal annars Seyðisfjörð, Fjarðabyggð og Fljótsdal, auk Egilsstaða sjálfra, á þeim sólarhring sem þeir dvöldust eystra. Þættirnir eru gerðir í samvinnu við Flugfélag Íslands.Þátturinn í kvöld verður sýndur klukkan 21:00. ÍNN næst í gegnum ADSL sjónvarp og Digital Íslands auk þess sem hægt er að sjá þáttinn á www.inntv.is.