Aðalsteinn í sauðburði
Nú stendur sauðburður sem hæst í sveitum, mikið að gera, fjölmennt á sumum bæjum og sauðburður um það bil hálfnaður víðast hvar. Fátítt mun samt vera að fjórir menn vinni við sauðburð á sama bænum sem allir heita sama nafninu.Miri selur lag til styrktar Mæðrastyrksnefnd
Lagið „Góða konan“ með hljómsveitinni Miri verður á morgun, sunnudaginn 9. maí, selt á Tonlist.is til styrktar Mæðrastyrksnefnd. Lagið er að væntanlegri breiðskífu, Okkar. Það kostar 500 krónur og rennur allur ágóði af sölunni á morgun óskiptur til málefnisins.
Sýningin Flóðið opnar í Neskaupstað
Á morgun opnar sýningin „Flóðið“ í fundarsal Hótel Egilsbúðar í Neskaupstað. Á sýningunni má líta ljósmyndir og kvikmyndir sem teknar voru á vettvangi í Neskaupstað eftir að snjóflóðin féllu þann 20. desember 1974.
Styrktartónleikar í beinni í Valaskjálf
Styrktartónleikar á SPOT í Kópavogi, til styrktar Margréti Andrésdóttir, verða sýndir í beinni útsendingu í Valaskjálf á Egilsstöðum fimmtudaginn 13. mai, uppstigningadag, milli klukkan 20:30 og 23:00
Tónleikar Diddú frestast
Tónleikar með Diddú og drengjunum, sem vera áttu á Eskifirði í dag, frestast um óákveðinn tíma vegna röskunar á flugi.Perúfarar með myndasýningu
Langförulir ferðalangar sem lögðu land undir fót fyrr á þessu ári og brugðu sér til Perú á slóðir Inka, voru með myndasýningu og frásögn frá ferðalaginu á gamla Munaðarhólnum í Fellabæ á Uppstigningadag.Eftirminnileg frumsýning
Klukkustundar rafmagnsleysi setti strik í reikninginn á föstudagskvöld þegar Leikfélag Seyðisfjarðar frumsýndi gamanleikinn Blúndur og blásýra.