Séra Gunnlaugur: Sumir hafa lagst í herför gegn Guði og kirkju
Enn virðist sem græðgisfár og sjálfhyggja séu við völd í íslensku samfélagi. Íslensk þjóð þráir samstöðu í sál sína. Þótt jólin séu tími sameiningar hafa sumir reynt að auka á sundrungina og tómhyggjuna með herför gegn Guði og kirkju.
Fjölmenni á jólamarkaði Barra
Um 1500-1600 manns sóttu jólamarkað Barra um seinustu helgi. Ellefu skógarbændur seldu þar jólatré og gekk salan vel.Á annað þúsund manns mættu í kirkjurnar í Vopnafirði um hátíðarnar
Stefán Már Gunnlaugsson, sóknarprestur í Hofsprestakall, segist ánægður með kirkjusókn í söfnuðinum um hátíðarnar. Messað var alla hátíðisdagana í kirkjunum auk þess var helgistund í Sundabúð.
Séra Jóhanna: Jólin mega ekki vera flótti frá raunveruleikanum
Eitt er að þekkja söguna af fæðingu Jesú Krists og annað að leyfa henni að hafa áhrif á sig og láta hana móta líf sitt. Jólin mega ekki verða flótti frá raunveruleikanum um stundarsakir.
Valaskjálf lokað um hátíðarnar
Allt útlit er fyrir að félagsheimilið Valaskjálf á Egilsstöðum verði lokað um jól og áramót. Ekki hefur enn fundist nýr rekstraraðili að húsinu.
Eiríkur Hauksson: Það er sterk taug milli mín og Norðfirðinga
Rokksöngvarinn Eiríkur Hauksson segist hlakka til að mæta á þungarokkshátíðina Eistnaflug í sumar. Kærkomið sé að hafa ástæðu til að kíkja í heimsókn á Norðforð og gera það sem hann kunni best.
Eiríkur Hauks snýr heim til Norðfjarðar á Eistnaflug
Rauðhærði rokkarinn Eiríkur Hauksson verður aðalgestur þungarokkshátíðarinnar Eistnaflug sem haldin verður á Norðfirði aðra helgina í júlí.
Okkar ein af bestu plötum ársins
Hljómplatan Okkar með austfirsku hljómsveitinni Miri er ein af tuttugu plötum á svokölluðum Kraumslista yfir bestu íslensku plötur ársins.