Mikil umræða verður á árinu um leirfok í Vatnajökulsþjóðgarði og á
Héraði sem er afleiðing Kárahnjúkavirkjunar. Ferðafólk lítur framhjá
svæðinu. Lið svæðsins standa sig vel í spurningakeppnum á landsvísu.
Þetta kemur fram í spá völvu Agl.is sem telur að af ásettu ráði hafi
verið unnið gegn Útsvarsliði Fljótsdalshéraðs.
Völva Agl.is segist „skugga“ vera yfir álveri Alcoa í Reyðarfirði. Hún
segir að upp muni komast um kvótasölu til erlendra aðila sem verði talin
til landráða. Sveitarstjórn Fljótsdalshéraðs þarf að takast á við mikla
atvinnuuppbyggingu. Agl.is birtir í dag fimmta hluta völvuspárinnar um
atvinnumál.
Völva Agl.is spáir meiðslum á fólki og skemmdum á þinghúsinu þegar
Alþingi kemur saman síðar í dag. Ríkisstjórnin riðar til falls og kröfur
eru um utanþingsstjórn. Þjóðin snýst gegn Evrópusamvinnu. Í fjórða
hluta völvuspárinnar er fjallað um þjóðmál og stjórnmál.
Áfram reynir á forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson á nýju ári. Völva
Agl.is gengur svo langt að segja hann einu von um sjálfstæði
þjóðarinnar. Þekktir einstaklingar snúast gegn EES samningnum. Lítið
kemur út úr stjórnlagaþinginu og enn hitnar undir Davíð Oddssyni og
Halldóri Ásgrímssyni.
Fimm austfirskar slysavarnardeildir verða með opið hús annað kvöld. Þær
slást þar í hóp slysavarnardeilda um allt land sem bjóða gestum heim til
að kynna starf sitt.
Völva Agl.is spáir miklum vandræðum innan Evrópusambandsins á árinu.
Rússar tryggja stöðu sína í Evrópu en of mikil tækni virðist grafa undan
stöðu Bandaríkjanna. Átök verða áfram milli Ísraels og Palestínu. Þetta
er meðal þess sem fram kemur í þriðja hluta spár völvunnar um
heimsmálin og umheiminn sem Agl.is birtir í dag.
Hallur Kristján Jónsson og félagar í austfirsku hljómsveitinni
Bloodgroup voru stöðvaðir af þýskum lögreglumönnum í vikunni. Leitað var
í hljómsveitarrútunni að fíkniefnum og vopnum.
Þekkingarnet Austurlands og Þróunarfélag Austurlands standa í vikunni
fyrir Evrópuviku. Hugmyndin með henna er að bjóða Austfirðingum upp á
fræðslu, umræður og ráðgjöf um Evrópumál og Evrópustyrki.
Völva Agl.is spáir óvæntu eldgosi á árinu og hræringum á svæðinu við
Blöndulón. Faldir fjármunir útrásarvíkinga finnast að lokum en það tekur
tíma. Agl.is birtir í dag annan hluta völvuspárinnar þar sem hún
fjallar um veður, náttúru, slysfarir og skaða og lög og reglu.