Völva Agl.is: Vinsældir álversins dvína

volvumynd_web.jpgVölva Agl.is segist „skugga“ vera yfir álveri Alcoa í Reyðarfirði. Hún segir að upp muni komast um kvótasölu til erlendra aðila sem verði talin til landráða. Sveitarstjórn Fljótsdalshéraðs þarf að takast á við mikla atvinnuuppbyggingu. Agl.is birtir í dag fimmta hluta völvuspárinnar um atvinnumál.

 

Lesa meira

Völva Agl.is: Slagsmál við þingsetningu

volvumynd_web.jpgVölva Agl.is spáir meiðslum á fólki og skemmdum á þinghúsinu þegar Alþingi kemur saman síðar í dag. Ríkisstjórnin riðar til falls og kröfur eru um utanþingsstjórn. Þjóðin snýst gegn Evrópusamvinnu. Í fjórða hluta völvuspárinnar er fjallað um þjóðmál og stjórnmál.

 

Lesa meira

Völva Agl.is: Boltaíþróttirnar standa ekki undir væntingum

volvumynd_web.jpgVölva Agl.is spáir ekki byrlega fyrir íslenska karlalandsliðinu í handknattleik en hún segir að boltaíþróttirnar skili ekki þeim árangri sem til er vænst. Landsliðið hefur leik á heimsmeistaramótinu gegn Ungverjum klukkan fjögur í dag. Agl.is birtir hér fyrsta hluta völvuspárinnar um íþróttir, fólk og samkomur, fjölmiðla og listir og menningu.

 

Lesa meira

Opið hús hjá slysavarnardeildum

hafdis_fask_slysavarnardeild.jpgFimm austfirskar slysavarnardeildir verða með opið hús annað kvöld. Þær slást þar í hóp slysavarnardeilda um allt land sem bjóða gestum heim til að kynna starf sitt.

 

Lesa meira

Völva Agl.is: Evrópusambandið tryggir þjóðum sínum eilíf vandræði

volvumynd_web.jpgVölva Agl.is spáir miklum vandræðum innan Evrópusambandsins á árinu. Rússar tryggja stöðu sína í Evrópu en of mikil tækni virðist grafa undan stöðu Bandaríkjanna. Átök verða áfram milli Ísraels og Palestínu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í þriðja hluta spár völvunnar um heimsmálin og umheiminn sem Agl.is birtir í dag.

 

Lesa meira

Ísbjörn í Fellabæ

Vont veður hefur verið á Fljótsdalshéraði undanfarin dægur. Töluvert hefur snjóað, flestum til armæðu og trafala svo trauðla hefur verið fært milli byggða og landshluta.  Snjórinn er þó í annan stað alltaf  kærkominn litlum og stórum til listsköpunar.

Lesa meira

Evrópuvika á Austurlandi

esb_fani.jpgÞekkingarnet Austurlands og Þróunarfélag Austurlands standa í vikunni fyrir Evrópuviku. Hugmyndin með henna er að bjóða Austfirðingum upp á fræðslu, umræður og ráðgjöf um Evrópumál og Evrópustyrki.

 

Lesa meira

Völva Agl.is: Eldgos sem kemur á óvart

volvumynd_web.jpgVölva Agl.is spáir óvæntu eldgosi á árinu og hræringum á svæðinu við Blöndulón. Faldir fjármunir útrásarvíkinga finnast að lokum en það tekur tíma. Agl.is birtir í dag annan hluta völvuspárinnar þar sem hún fjallar um veður, náttúru, slysfarir og skaða og lög og reglu.

 

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.