Nýrri og glæsilegri flokkunarsamstæðu hefur nú verið komið fyrir í miðbæ Djúpavogs en styrkur frá Uppbyggingarsjóði Austurlands hlaust til verksins í tengslum við Cittaslow-stefnu hreppsins.
Minnihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar gagnrýnir vinnubrögð meirihluta Seyðisfjarðalistans við ráðningu nýs bæjarstjóra sem staðfest var á bæjarstjórnarfundi í gær vegna skorts á gögnum. Forseti bæjarstjórnar segir minnihlutann hafa fengið sömu gögn og meirihlutann. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks gerðu tillögu um ráðningu fyrrverandi forseta bæjarstjórnar.
Aðalheiður Borgþórsdóttir var í gær ráðin nýr bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar. Aðalheiður þekkir vel hjá bænum þar sem hún var ferða- og menningarfulltrúi í 17 ár. Hún segist hlakka til við að vinna að eflingu staðarins.
Lilja Guðný Jóhannesdóttir hefur verið skipuð skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands. Lilja hefur starfað í skólanum síðustu ár og segist spennt fyrir starfinu.
Bændum í fjórum af fimm varnarhólfum á svæðinu milli Jökulsár á Fjöllum og Jökulsár á Breiðamerkursandi er heimilt að flytja hey út til Noregs. Þetta eru niðurstöður athugunar Matvælastofnunar.
Björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í Neskaupstað, Hafbjörg, var kölluð út rétt fyrir klukkan fimm í gær á fyrsta forgangi þegar Eyji NK varð vélarvana rétt utan Norðfjarðar.
Þór Steinarsson, nýr sveitarstjóri á Vopnafirði, hóf störf hjá sveitarfélaginu í dag. Hann hlakkar til að kynnast staðnum og fólkinu sem þar býr og líst vel á sig í nýju umhverfi.
„Við erum búnar að loka dæminu og nú er bara verið að huga að uppstillingu fyrir helgina,“ segir Guðrún Smáradóttir, en hún sér um skipulagningu fjölskylduhátíðarinnar Neistaflugs ásamt dætrum sínum Eyrúnu Björgu og Maríu Bóel Guðmundsdætrum.
Meðalhiti hefur aldrei mælst hærri í júlí á Dalatanga í sögu 80 ára veðurmælinga þar heldur en í nýafstöðnum mánuði. Hæsti meðalhiti á landinu var á Hallormsstað.
„Við þurfum öll að hjálpast að og láta vita ef við sjáum eitthvað misjafnt,“ segir landvörðurinn Lára Björnsdóttir um síendurtekinn stuld á silfurbergi úr Helgustaðanámu við Eskifjörð.
Forsvarsfólk Móður Jarðar sem rekur lífræna ræktun í Vallanesi á Fljótsdalshéraði kalla eftir samtali um hvað aukin viðurkenning á sjálfboðaliðavinnu við ýmis störf geti fyrir íslenskt þjóðfélag. AFL Starfsgreinafélag segir sjálfboðaliða sem notaðir séu í atvinnurekstri grafa undan kjörum launafólks.
„Helgin gekk alveg svakalega vel, við erum öll mjög ánægð með hvernig til tókst og höfum ekki heyrt neitt annað en gleði og meiri gleði,“ segir Bræðslustjórinn Áskell Heiðar Ásgeirsson um nýliðna helgi. Aukin löggæsla var á vegum í kringum Borgarfjörð og Egilsstaði um helgina, sem og á Bræðslusvæðinu sjálfu.