Leitað að brennuvargi í Neskaupstað
Lögreglan á Austurlandi leitar að upplýsingum um íkveikju á gömlu leikskólalóðinni í Neskaupstað í fyrrakvöld. Mynd af verknaðinum hefur gengið á samfélagsmiðlum en af henni er ekki hægt að greina hver var að verki.Vilja ákvörðun um Fjarðarheiðargöng í haust
Bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstaðar leggur áherslu á að Fjarðarheiðargöng sjáist á nýrri samgönguáætlun sem væntanleg er á Alþingi í haust. Rétt sé að farið verið í göngin strax að loknum Dýrafjarðargöngum.Vilja heilsársveg yfir Öxi inn á samgönguáætlun
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps telur eðlilegt að ráðist verði í gerð heilsársvegar yfir Öxi í framhaldi af vegabótum í botni Skriðdals. Það sé í samræmi við ályktanir aðalfunda Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA).Hert umferðareftirlit um helgina
Lögreglan á Austurlandi verður sýnileg á vegum umdæmisins um helgina. Von er á mikilli umferð þar sem tvær stórar hátíðir fara fram, annars vegar Bræðslan á Borgarfirði og hins vegar Franskir dagar á Fáskrúðsfirði.Jarðir á Héraði í erlendri eigu
Tveir Danir, sem auðgast hafa á matvælaframleiðslu, eiga saman þrjár jarðir á Jökuldal og í Jökulsárhlíð. Eyðibýli í Jökuldalsheið hefur bæst í safn Jim Ratcliffe. Svissneskur bankamaður keypti nýverið jörð í Fljótsdal, samkvæmt samantekt sem vikublaðið Austurglugginn birtir í dag.„Þetta er orðin ein stór fjölskylda sem alltaf er jafn gaman að hitta“
„Undirbúningur gengur vel og fyrsti viðburður Bræðsluvikunnar verður í Fjarðaborg í kvöld þar sem boðið verður upp á Borgfirskan tónlistarbræðing og barsvar. Svo rekur hver viðburðurinn annan fram að tónleikunum sjálfum á laugardagskvöldið,“ segir bræðslustjórinn Áskell Heiðar Ásgeirsson, en dagskrá Bræðsluvikunnar hefst formlega í kvöld.