Þarf að skoða verkferlana þegar þoturnar fara aftur af landi brott
Sérstakar aðstæður sköpuðust sem læra þarf af þegar tvær þotur frá ungverska flugfélaginu Wizz Air hleyptu út 200 farþegum á Egilsstaðaflugvelli nýverið. Vélarnar lentu þar vegna veðurs í Keflavík og leyfðu farþegum að fara á eigin ábyrgð. Framkvæmdastjóri Austurbrúar segir að almennt hafi gengið vel að taka á móti flugfélögum sem nýta Egilsstaði sem varaflugvöll.Hágæða troll framleidd á Eskifirði
Egersund Ísland á Eskifirði hefur mikla reynslu sviði sölu og gerð veiðarfæra og viðgerða á flottrollum og nótum. Á dögunum seldu þeir makríl- og síldartroll til Færeyja og er þetta í þriðja sinn ser það er gert.
Dagskrá í tilefni af alþjóða geðheilbrigðisdeginum
Geðhjálp Austurlandi í samvinnu við Ásheima, mann- og geðræktarmiðstöð, stendur fyrir dagskrá í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í kvöld í tilefni af alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum.Sameiginlegur hádegismatur á Seyðisfirði
Á föstudaginn síðasta var fyrirkomulagi á mötuneyti Seyðisfjaðarskóla breytt. Skólinn, Hótel Aldan, félagsheimilið Herðubreið og LungA skólinn vinna saman að því að bjóða nemendum og íbúum upp á hádegismat í Herðubreið.
Vandamál með pólskukennslu á landsbyggðinni eftir einhliða ákvörðun Reykjavíkurborgar
Sveitarfélög á landsbyggðinni eru í vandræðum með að sinna pólskukennslu eftir að Reykjavíkurborg hætti að bjóða öðrum sveitarfélögum upp á þjónustu sína. Sveitarfélögin þurfa nú að finna aðrar leiðir til að aðstoða tvítyngda nemendur.Sóley og Ofurhetjan sigruðu Smásagnakeppni KÍ 2019
Nemendur í leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði tóku þátt og sigruðu í Smásagnakeppni Kennarasamband Íslands. Keppnin er haldin í 5 sinn og um 200 smásögur bárust í keppnina.
Hækkandi fasteignamat eykur útgjöld íbúa
Fasteignamat í fjórum byggðarlögum á Austurlandi hækkar um 13-18% á milli ára. Hækkunin á tveggja ára tímabili nemur 20-30%. Í kjölfarið hækka fasteignagjöld. Nokkur umræða hefur verið í austfirskum sveitarstjórnum vegna hækkandi gjalda.Engir kólígerlar á Eskifirði
Fyrr í dag barst tilkynning um að fundist hefðu kólígerlar í neysluvatni í Eskifirði en það reyndist vera rangt.