Umferð um hringveginn á Austurlandi minnkar um nær 50%
Umferðin á Hringveginum í september, miðað við sama mánuð í fyrra, dróst saman um heil 16,3 prósent sem er sjöfalt meiri samdráttur en áður hefur mælst. Mestur var samdrátturinn á Austurlandi eða nær 50%.Hvetja til ýtrustu varkárni við ferðir á höfuðborgarsvæðið
Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi hvetur íbúa og forsvarsfólk fyrirtækja og stofnana í fjórðungnum til að fara yfir smitvarnir sínar og skerpa á verklagi ef þess er þörf. Harðari takmarkanir tóku gildi á miðnætti.Góð veiði af glimrandi síld
Beitir NK kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með 1.300 tonn af síld. Löndun úr honum hófst strax og löndun úr Berki NK lauk en Börkur var með 860 tonn.Laxar fá aukna heimild til framleiðslu í Reyðarfirði
Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi til fiskeldisfyrirtækisins Laxa um eldi á allt að 16 þúsund tonnum af fiski í Reyðarfirði. Fyrirtækið hefur í dag leyfi fyrir sex þúsund tonna eldi þar.Kanna verð á grasi á Vopnafjarðarvöll
Fyrir liggur að sennilega þarf að skipta út grasinu á Vopnafjarðarvelli. Kannað verður hvort sé hagkvæmara að fá nýtt gras eða gervigras. Minnihlutinn í sveitarstjórn lagði fram tillögu um að málið yrði kannað á síðasta sveitarstjórnarfundi og var sú tillaga samþykkt samhljóða.Tókst að útvega nær öllum leikskólapláss
Tekist hefur að útvega nær öllum sem vildu leikskólapláss á Egilsstöðum og nágrenni úrlausn sinna mála. Aðeins skorti örfá pláss fyrir yngstu börnin sem sótt hafði verið um pláss fyrir í vor þegar lausum plássum var úthlutað.Fólki fjölgar á Austurlandi nema á Seyðisfirði
Íbúar á Austurlandi voru 10.740 um síðustu mánaðarmót að því er fram kemur í tölum um mannfjölda á landinu hjá Hagstofunni. Fólki fjölgar allsstaðar í fjórðungnum nema á Seyðisfirði þar sem þeim fækkar lítilega á milli ára.Fjarðabyggð endurnýjar ekki samninga við Íslenska gámafélagið
Fjarðabyggð tilkynnt að sveitarfélagið hyggist ekki endurnýja samning um sorphirðu við Íslenska gámafélagið sem rennur út um áramót. Breytingar eru á döfinni í sorphirðumálum sveitarfélagsins.
Líkamsræktarstöðvum í Fjarðabyggð lokað
Vegna hertra sóttvarnarráðstafana hefur líkamsræktarstöðvum í Fjarðabyggð verið lokað frá og með gærdeginum. Gert er ráð fyrir þessum lokunum að minnsta kosti næstu tvær vikurnar að því er segir á vefsíðu Fjarðabyggðar.