Flughált víða á Héraði
Flughálka er víða á Héraði, á Fjarðarheiði og Vatnsskarði eystra. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar.Fyrstu nýju íbúðahúsin í áratugi rísa á Borgarfirði eystri
Verið er að reisa fyrstu nýju íbúðahúsin í áratugi á Borgarfirði eystri. Bílalest kom með húsin til Borgarfjarðar í nótt.Stjórnendum í ferðaþjónustu boðin þátttaka í Ratsjánni
Landshlutasamtök sjö landsvæða á Íslandi hafa tekið sig saman um að bjóða stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum þátttöku í nýrri útgáfu af Ratsjánni, samtengdu verkefni sem hefst í upphafi árs 2021.Sauðagull og Nielsen á Uppskeruhátíð
Tvö sprotafyrirtæki á Austurlandi, Sauðagull og Nielsen, verða í hópi níu sprotafyrirtækja á Uppskeruhátíð á morgun. Hátíðin er á vegum Icelandic startups og Íslenska sjávarklasans.Vandræði með götulýsingu í Fjarðabyggð
Talsvert mikið af ábendingum hefur borist til framkvæmdasviðs Fjarðabyggðar vegna götulýsingar í bæjarkjörnunum. Undanfarið hefur verið unnið að því að lagfæra götulýsinguna þar sem þess hefur verið þörf, en vinna við það hefur því miður gengið hægar en gert var ráð fyrir.Hörð mótmæli veiðifélaga vegna laxeldis í Seyðisfirði
„Stjórnir Veiðifélaga Hofsár og Sunnudalsár, Selár og Vesturdalsár í Vopnafirði mótmæla harðlega áformum Fiskeldis Austfjarða um 10.000 tonna laxeldi, sem áætlað er að innihaldi 6500 tonn af ógeldum norskum eldislaxi, í opnum sjókvíum í Seyðifirði.“Hluturinn í Fiskeldi Austfjarða metinn á 20 milljarða
Norska laxeldisfélagið Måsöval eignaðist nýlega 55,6% hlut í Fiskeldi Austfjarða. Á vefsíðunni laks.no segir að andvirði þessa hlutar sé metið á rúmlega 1,3 milljarða nkr. eða um 20 milljarða kr. Samkvæmt því er verðmatið á Fiskeldi Austfjarða í heild um 38 milljarðar kr.Ný starfsstöð Hafró í Neskaupsstað frá áramótum
Frestur til að sækja um tvær nýjar stöður hjá nýrri starfsstöð Hafrannsóknarstofun (Hafró) í Neskaupsstað rennur út nú um mánaðarmótin. Ráðið verður í stöðurnar um áramótin og tekur starfsstöðin þá til starfa.