Fækka tilkynningum á ný
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurland hefur ákveðið að byrja á ný að senda tilkynningar um stöðu Covid-19 faraldursins í fjórðungum til íbúa aðeins á þriðjudögum og föstudögum.Undanfarnar vikur hefur aðgerðastjórnin sent íbúum daglegar áréttingar. Hún var nýbúin að breyta því þegar smit greindist þriðjudaginn í síðustu viku. Daglegum útsendingum var þá umsvifalaust komið á aftur.
Nú ætlar aðgerðastjórnin að nýta logið fækka tilkynningum á ný og senda aðeins út tvær í viku. Það breytist ef vindátt breytist eða hvessir, eins og það er orðað í orðsendingu dagsins.
Í tilkynningu dagsins eru íbúar minntir á að huga að persónulegum sóttvörnum. Minnt er á að hið árlega inflúensutímabil sé framundan en varnirnar virki vel gegn henni, sem fleiri veirupestum.
Einn einstaklingur er í einangrun með virkt Covid-19 smit og einn í sóttkví.