Loðnan sem Polar Amaroq fann er stór og falleg

Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq kom til Neskaupstaðar í nótt að loknum loðnuleitarleiðangri sem hófst sl. föstudag. Loðnan sem fannst er stór og falleg.

Rætt er við Geir Zoëga skipstjóra á Polar Amaroq á vefsíðu Síldarinnslunnar. Hann segir að nú sé búið að senda Hafrannsóknastofnun sýni og önnur gögn úr leiðangrinum og spennandi verði að heyra hvernig þau verði metin.

„Eins og ég hef sagt þá lítur þetta vel út. Það var mikið að sjá og loðnan er stór og falleg,“ sagði Geir.
 
Að sögn Geirs mun Polar Amaroq væntanlega halda til kolmunnaveiða í færeysku lögsögunni annað kvöld.

„Við eigum eftir einn kolmunnatúr en að honum loknum værum við svo sannarlega tilbúnir að fara í aðra loðnuleit. Mér finnst bráðskemmtilegt að leita að loðnunni og það er svo spennandi,“ segir Geir

„Sérstaklega er þetta skemmtilegt þegar eitthvað gott kemur út úr þessu eins og ég held að hafi gerst í leitinni núna.“

Mynd: SVN.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.