Líkur á rafmagnstruflunum í rokinu
Landsnet varar við að rafmagnstruflanir geti orðið á Austurlandi í miklu hvassviðri sem spáð er á svæðinu í kvöld og á morgun.Reyna að tryggja skriðusvæðið fyrir vindhvellinn
Verktakar sem vinna að hreinsun eftir skriðuföllin á Seyðisfirði hafa seinni partinn í dag reynt að takmarka fok á braki í skriðunni fyrir mikið norðvestan hvassviðri sem spáð er í nótt og fyrramálið. Ekki er talið að óveðrið skapi skriðuhættu á ný.Vöktunartæki pöntuð eftir skriðuföllin komin upp
Búið er að koma upp sjálfvirkri alstöð sem pöntuð var til að vakta fjallshlíðina ofan Seyðisfjarðar eftir skriðuföllin þar um miðjan desember. Veðurstofan vill gera tilraunir þar með búnað sem ekki hefur áður verið notaður hérlendis. Hreyfingar í hlíðinni hafa verið óverulega frá því fyrir jól.Björgunarsveitir um nær allt Austurland á eftir þakplötum
Björgunarsveitir af nær öllu Austurlandi hafa sinnt verkefnum í dag sem tengjast miklu hvassviðri sem gengur yfir fjórðunginn. Víða hefur þurft að glíma við þakplötur á ferðinni.Vilji til að endurbyggja Vélsmiðjuna - Myndir
Áhugi er á að endurbyggja Vélsmiðju Jóhanns Hanssonar, eitt helsta sýningarrými Tækniminjasafns Austurlands, en stór hluti hennar er ónýtur eftir að hafa orðið fyrir stóru skriðunni sem féll á Seyðisfjörð 18. desember. Merkir safnmunir eru ónýtir meðan aðrir virðast ótrúlega heillegir.Spá að vindur nái fellibylsstyrk á Austfjörðum
Veðurstofan hefur uppfært veðurviðvörun sína fyrir Austurland að Glettingi og Austfirði úr gulu í appelsínugult. Spáð er að vindur í hviðum á Austfjörðum fari yfir 45 m/s sem er fellibylsstyrkur.Taka jákvætt í rafskútuleigu á Egilsstöðum
"Heimastjórn Fljótsdalshéraðs tekur jákvætt í umsókn vegna mögulegar opnunar rafskútuleigu á Egilsstöðum og leggur til að gerður verði samningur um málið sem tekinn verði til afgreiðslu þegar hann liggur fyrir."