Tjaldstæði til leigu á Borgar- og Seyðisfirði
Múlaþing hefur auglýst til leigu aðstöðu og rekstur á annars vegar tjaldsvæðinu á Borgarfirði Eystra og hins vegar á Seyðisfirði til ársloka 2021, með möguleika á framlengingu. Einum og sama aðilanum er heimilt að bjóða í leigu á aðstöðu og rekstur beggja tjaldsvæða.Forstjóri SVN segir að staðan sé grafalvarleg
Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar (SVN) segir að það sé alveg grafalvarleg staða komin upp þar sem hluti af athafnasvæði félagsins á Seyðisfirði er innan hættusvæðis. "Það sér hver maður að það er ekki hægt að vera með atvinnustarfsemi á hættusvæði eins og hér um ræðir," segir Gunnþór.Íbúar hvattir til að íhuga hvort naglarnir séu enn nauðsynlegir
Lögreglan á Austurlandi hvetur íbúa í fjórðungnum til að íhuga vandlega hvort ekki sé kominn tími á að skipta yfir á sumardekkin.Njáll Trausti og Gauti berjast um fyrsta sætið hjá Sjálfstæðisflokknum
Gauti Jóhannesson, forseti sveitarstjórnar Múlaþings og Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður frá Akureyri, bjóða sig fram í fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Níu gefa kost á sér í fimm efstu sæti.Fengu köku eftir 10.000 tonnin
Áhöfnin á uppsjávarskipinu Hoffelli fengu köku þegar skipið kom í höfn á Fáskrúðsfirði fyrir helgina. Tilefnið var að Hoffell hefur veitt 10.000 tonn af kolmunna á árinu.22,3% komin með bólusetningu
Rétt ríflega 22,3% Austfirðinga hafa nú fengið bólusetningu við Covid-19 veirunni.Byrja að sá grasfræjum í aurskriðusárin á Seyðisfirði
Í næstu viku verður byrjað að sá grasfræjum í aurskriðusárin á Seyðisfirði. Gert er ráð fyrir að verkið taki um tvær til þrjár vikur.