Þokkalegur kraftur í kolmunnaveiðunum
Kolmunnaskipin hafa fengið ágætan afla á gráa svæðinu suður af Færeyjum í vikunni. Einn daginn fékk Bjarni Ólafsson AK 550 tonn eftir að hafa togað í 15 tíma, Beitir NK fékk 450 tonn eftir 16 tíma og Börkur NK 400 tonn eftir 12 tíma. Það er ljóst að kolmunnaveiðin er hafin og þokkalegur kraftur í henni.Töluverður eldur neðan í brúnni
Við fyrstu sýn virðast minniháttar skemmdir hafa orðið á brúnni yfir Lagarfljót, milli Egilsstaða og Fellabæjar, eftir að eldur kviknaði í rafmagnslögn undir brúnni.Kviknaði í rafstreng undir Lagarfljótsbrú
Eldur kviknaði í rafstreng sem liggur í brúnni yfir Lagarfljót, milli Egilsstaða og Fellabæjar, um klukkan hálf tvö í dag.Framleiðsla á laxi þrefaldast á skömmum tíma
Framleiðsla á laxi á Austurlandi nærri þrefaldaðist milli áranna 2018 og 2019. Nýjar tölur sýna hraðan vöxt í fiskeldi á svæðinu.Litlar skemmdir á Lagarfljótsbrúnni
Ekki virðast hafa orðið teljandi skemmdir á brúnni yfir Lagarfljót, milli Egilsstaða og Fellabæjar, þegar eldur kviknaði í rafstreng sem liggur undir henni í dag. Umferð yfir hana er orðin eðlileg á ný.Telja umhverfismat vegna fiskeldis í Seyðisfirði ónýtt
VÁ! – félag um vernd fjarðar telur Fiskeldi Austfjarða ekki hafa farið að lögum við gerð frummatsskýrslu fyrir fyrirhugað fiskeldi í Seyðisfirði. Lögfræðingar félagsins segja fullyrðingar fyrirtækisins um að eldið falli ekki undir nýleg lög um skipulag haf- og strandsvæða ekki standast þar sem eldissvæðum hafi verið fjölgað eftir að lögin tóku gildi.Einn í einangrun vegna landamærasmits
Einn er í einangrun vegna smits á Austurlandi. Um landamærasmit er að ræða og tengist komu tuttugu og fimm manna hóps með Norrænu fyrir þremur vikum síðan.Minningarreitur um skriðuföllin á Seyðisfirði í bígerð
Hugmyndavinna um minningarreit um skriðuföllin á Seyðisfirði er hafin. Aðalheiður Borgþórsdóttir fulltrúi sveitarsstjóra í heimastjórn Seyðisfjarðar segir að málið sé á frumstigi.Nýtt sorphirðudagatal væntanlegt á næstu dögum
Nýtt sorphirðudagatal fyrir Múlaþing og Fljótsdalshrepp verður birt á næstu dögum. Dráttur hefur orðið á því vegna breytinga á sorphirðu á Austurlandi.Blængur með 150 milljóna króna aflaverðmæti
Frystitogarinn Blængur NK sigldi inn á Norðfjörð í blíðunni í gær að lokinni vel heppnaðri veiðiferð. Aflaverðmætið nam um 150 milljónum kr. eftir 21 dags veiðiferð.