Um 1000 Austfirðingar bólusettir á morgun
Búið er að boða um 1000 manns í bólusetningar hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands í vikunni. Stór hluti kennara á svæðinu fær sína fyrstu bólusetningu við Covid-19 veirunni.Fyrrum Eiðanemi að baki kauptilboði í Eiða
Arngrímur Viðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Álfheima á Borgarfirði, stendur að baki kauptilboði í jörðina Eiða sem Landsbankinn hefur samþykkt. Tilboðið er háð ákveðnum fyrirvörum, meðal annars um fjármögnun.Stjórn Síldarvinnslunnar endurkjörin
Stjórn Síldarvinnslunnar var endurkjörin á aðalfundi félagsins sem haldinn var fyrir helgina. Í henni sitja sem aðalmenn: Anna Guðmundsdóttir, Björk Þórarinsdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason, Ingi Jóhann Guðmundsson og Þorsteinn Már Baldvinsson. Varamenn eru þau Arna Bryndís Baldvins McClure og Halldór Jónasson.Vinna hafin við byggingu kassaverksmiðju á Djúpavogi
Vinna við grunninn undir kassaverksmiðju Bewi Iceland á Djúpavogi er hafin og í Austurglugganum þessa vikuna er auglýst eftir verksmiðjustjóra.Nýtt vinnslukerfi hjá LVF eykur afköstin um 70%
Nýlega undirrituðu Loðnuvinnslan (LVF) og Skaginn 3X samning um nýtt vinnslukerfi LVF sem auka mun sjálfvirkni og vinnslugetu. Stefnt er að því að auka afköst vinnslunnar í allt að 400 tonn á sólarhring sem er um 70% afkastaaukning frá því sem nú er. Nýja kerfið er hannað til að framleiða hágæða vöru á sem hagkvæmastan hátt.Sýni úr leghálsskimun finnst ekki í Danmörku
Jacqueline Guðgeirsson íbúi á Egilsstöðum segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum sínum við heilbrigðiskerfið. Hún hefur beðið í tvo mánuði eftir niðurstöðum úr leghálsspeglun en sýni hennar virðist týnt í Danmörku.Þriðjungur samfélagsstyrkja SVN til íþrótta
Veittir samfélagsstyrkir Síldarvinnslunnar (SVN) á síðasta ári námu 47,5 milljónum kr. og þar af fóru ríflega 16,2 milljónir kr. til íþróttatengdrar starfsemi.Kynna verkefnið Úthérað - náttúruvernd í kvöld
Kynningarfundur um verkefnið Úthérað – náttúruvernd og efling byggða verður haldin í kvöld klukkan 20.00. Verkefnið er hluti af byggðaáætlun og jafnframt hluti af verkefni sem Fljótsdalshérað hefur unnið að á undanförnum árum um möguleika náttúru- og menningartengdrar ferðaþjónustu á Úthéraði.