Forstjóri RARIK telur að mikill árangur hafi náðst í jöfnun aðstöðumunar dreifbýlis og þéttbýlis með samþykkt nýrra laga um jöfnun flutningskostnaðar raforku í vor. Formaður bæjarráðs Fljótsdalshéraðs segir erfitt hafa verið að sitja undir þeirri mismunun sem var.
Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað sendir utanríkisráðherra og formanni utanríkismálanefndar tóninn í pistli sem birtist áheimasíðu SVNí dag. Hann segir enga efnislega umræðu hafa farið fram um þátttöku íslenskra stjórnvalda í að framlengja viðskiptabann gegn Rússum vegna málefna Úkraínu, þrátt fyrir að hagsmunir þjóðarbúsins séu lagðir að veði með þeirri ákvörðun.
Veðurstofan hefur sent frá sér viðvörun þar sem lýst er yfir óvissuástandi vegna skriðuhættu á Austfjörðum, í kjölfar mikilla rigninga í fjórðungnum síðasta sólarhring. Mest var úrkoman í nótt, en þá rigndi gríðarlega og mældist úrkoma í Seyðisfirði og á Fáskrúðsfirði meiri en 10 millimetrar á klukkustund þegar mest rigndi í nótt. Veginum í sunnanverðum Seyðisfirði var lokað í morgun vegna skriðuhættu.
Utanríkismálanefnd Alþingis virðist ekki vera á þeirri skoðun að hverfa frá viðskiptaþvingunum gegn Rússum í ótta við að það komi niður á íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir viðskiptabann ekki uppbyggilega leið til að leysa ágreiningsmál.
Hafnarnefnd Vopnafjarðarhrepps ákvað á fundi sínum í gærkvöldi að taka tilboði Hagtaks hf. í Hafnarfirði í dýpkun og breikkun innsiglingar Vopnafjarðarhafnar. Stækka þarf höfnina til að ný skip HB Granda geti athafnað sig svo vel sé.
Strandveiðar á svæði C, sem nær yfir Austfirði, gengu vel í júlímánuði miðað við tölur frá Fiskistofu. Alls komu á land ríflega 1.157 tonn eða um helmingi meira en ráð var fyrir gert að veitt yrði á svæðinu í mánuðinum.
Óljóst er hvað verður um vikublaðið Austurland eftir að Vefpressan ehf. yfirtók útgáfufélag þess Fótspor. Ritstjórinn segist ekki enn hafa heyrt í nýjum eigendum.
Vegurinn frá Borgarfirði yfir í Loðmundarfjörð varð fyrir skemmdum vegna þeirrar gríðarlegu úrkomu sem var á Austfjörðum í fyrrinótt og í gær. Unnið er að viðgerð og reiknað er með því að vegurinn verði orðinn fær í kvöld, samkvæmt Birni Sigurðssyni hjá Vegagerðinni.
Við vinnslu tekjulista Austurfréttar fyrir Fljótsdalshérað urðu þau mistök að Benedikt Ólason, ýtustjóri, var sagður vera með 1,4 milljónir í tekjur á mánuði.
Austurfrétt barst veður af því að hestar væru lausir í þéttbýli á Egilsstöðum um fimmleytið í dag. Blaðamaður fór á vettvang og þá var blessunarlega búið að ná hestunum í taum efst á Fagradalsbrautinni.
Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði var kölluð út upp úr hádegi í dag vegna bíls sem var fastur út í miðri Austdalsá en í bílnum voru tveir farþegar auk bílstjóra.