Eistnaflug: Börn leyfð til klukkan tíu – Skipuleggjandi segir hátíðum mismunað

eistnaflug 2014 0070 webTónlistarhátíðin Eistnaflug í Neskaupsstað sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi þess efnis að lögreglustjórinn á Austurlandi hefði ákveðið að börn mættu ekki koma inn í tónleikasalinn á Eistnaflugi. Það er rangt, samkvæmt lögreglunni á Eskifirði. Börn megi vera á tónleikum til klukkan tíu. Skipuleggjandi Eistnaflugs segir tónlistarhátíðum mismunað hvað þetta varðar og nauðsynlegt sé að yfirvöld dragi skýra línu.

Lesa meira

Djúpivogur: Þróun miðbæjarins taki mið af fólki, eðli þess og þörfum

IMG 1607Tæplega þrjátíu manns mættu á íbúafund um skipulagsmál á Djúpavogi á fimmtudaginn í síðustu viku. Þar voru kynnt þau þemu sem hafa verið höfð að leiðarljósi við gerð nýs deiliskipulags fyrir miðbæjarsvæðið á Djúpavogi og íbúum var gefinn kostur á að taka þátt í hugmyndastarfinu með því að greina veikleika, styrkleika og tækifæri á hverju svæði í miðbænum.

Lesa meira

Unnið dag og nótt á Egilsstaðanesi

egilsstadanesVerið er að endurnýja stofnlögn hitaveitunnar á milli Egilsstaða og Fellabæjar. Unnið hefur verið dag og nótt að verkinu undanfarið og allt gengið samkvæmt áætlun, samkvæmt Guðmundi Davíðssyni, framkvæmdastjóra Hitaveitu Egilsstaða og Fella.

Lesa meira

Vilhjálmur G. Pálsson: Sárt að missa stóru sjóðina

villi sparnor juni15Allt stefnir í að innan tíðar verði Sparisjóður Austurlands, sem þar til í apríl var kenndur við Norðfjörð, einn af fjórum sparisjóðum sem eftir eru í landinu en þrír stórir sjóðir hafa horfið undir bankana nýverið. Vilhjálmur G. Pálsson, sparisjóðsstjóri, er jafnframt nýr formaður Sambands íslenskra sparisjóða (SÍSP)

Lesa meira

Kannast ekki við refadauða á Austurlandi

refur web hhhHvorki líffræðingar né grenjaskyttur kannast við óvenjulegan refadauða á Austurlandi. Þótt afföll kunni að vera á stofninum annars staðar sjást þess engin merki eystra.

Lesa meira

Þorvaldur Jóhannsson: Vildi Austurland í eitt sveitarfélag

thorvaldur johannsson juni15Þorvaldi Jóhannssyni, fyrrum bæjarstjóra á Seyðisfirði og framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, þykir það miður að ekki hafi verið unnið áfram með hugmynd um sameiningu Austurlands í eitt sveitarfélag.

Lesa meira

Eiður Ragnars hættir í bæjarstjórn Fjarðabyggðar

eidur ragnarsson mai2014Eiður Ragnarsson, fulltrúi Framsóknarflokks í bæjarstjórn Fjarðabyggðar, hefur sagt sig úr bæjarstjórninni. Ástæðan er að hann er að flytja aftur á æskustöðvarnar í Djúpavogshreppi.

Lesa meira

Af hverju eru Egilsstaðir og Fellabær ekki á Facebook?

egilsstadir 03072013 0001 webSpurning fyrirsagnarinnar hefur kvalið margan manninn á Fljótsdalshéraði um árabil, en fyrir þá sem ekki vita þá er staðreyndin sú að á samskiptamiðlinum Facebook er hvorki hægt að velja Egilsstaði né Fellabæ sem heimabæ sinn.

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.