Óttast að lokanir á veiðisvæðum stórskaði útgerð á Borgarfirði
Smábátasjómenn og hreppsnefnd á Borgarfirði eystra hafa áhyggjum af áhrifum tímabundins banns við handfæraveiðum úti við Glettinganes á sumrin. Trillusjómenn kalla eftir að þeim verði bættur skaðinn ef bannið gengur í gildi. Hreppsnefndin segir enn frekar sparkað í byggð í vanda.„Sjáum áhlaupið á Hraunasvæðið vera að hefjast“
Náttúruverndarsamtök Austurlands (NAUST) hafa skorað á sveitarstjórnir Djúpavogshrepps, Fljótsdalshrepps og Fljótsdalshéraðs að gjalda varhug við áformum um virkjanir í ám sem falla frá svonefndum Hraunum á sunnanverðu hálendi Austfjarða. Formaður samtakanna segir þörf á upplýstri og gagnrýninni umræðu. Smávirkjanir séu oft ekki smáar þegar betur er að gáð.Enn lokað upp að Hengifossi
Hluti leiðarinnar upp að Hengifossi í Fljótsdal er enn lokaður. Brugðið var á það ráð fyrir viku til að varna frekari gróðurskemmdum vegna vætutíðar og átroðnings.Stóri plokkdagurinn: Tíu plokkuðu á Stöðvarfirði
Stóri plokkdagurinn var haldinn á sunnudaginn var, þann 28. apríl. Það að plokka snýst um að tína upp rusl á förnum vegi á meðan gengið er eða skokkað. Jóhanna Guðný Halldórsdóttir fór fyrir hópi plokkara á Stöðvarfirði.