„Loðnubresturinn mun hafa áhrif á þessu ári“
Aðalfundur Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði var haldinn á föstudaginn var en hagnaður af rekstri fyrirtækisins í fyrra var um 700 miljónir. Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastóri Loðnuvinnslunnar segir afkomuna vel viðunandi.
Viljum gera gott mót fyrir alla
Landsmót UMFÍ 50 ára og eldri verður haldið í Neskaupstað dagana 28. – 30. júní. Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri mótsins, segir mikinn áhuga fyrir mótinu í Neskaupsstað og gaman að vinna að undirbúningi með Norðfirðingum.
Telur flygildi framtíðina í vöktun hafsvæða
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi hvetur til þess að Ísland gerist sem fyrst aðili að Geimvísindastofnun Evrópu. Slíkt skipti máli fyrir vöktun á því gríðarstóra hafsvæði sem umlykur landið. Flygildi sem er í tilraunaflugi á Egilsstöðum sé það sem koma skal.Íbúar á landsbyggðinni eiga líka rétt á að koma í og kveðja heiminn í sínu nærumhverfi
Heilbrigðisþjónusta á landsbyggðinni sparar Sjúkratryggingum Íslands fleiri hundruð flugferða á hverju ár, segir forstöðulæknir Umdæmissjúkrahússins í Neskaupstað. Hann blæs á spár um að sjúkrahús á landsbyggðinni séu of lítil til að geta sinnt þjónustu vel.Finn hvað bændur eru þakklátir fyrir að geta hringt
Maí er ekki bara annasamur tími hjá sauðfjárbændum sjálfum, heldur einnig þjónustuaðilum þeirra. Hjá Landstólpa á Egilsstöðum er í boði sólarhringsþjónusta yfir þennan annatíma. Verslunarstjórinn segir mánuðinn erfiðan en ánægjulegan.Tíu mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann á fertugsaldri til níu mánaða fangelsisvistar fyrir ítrekuð ölvunarakstursbrot.Vatnsverksmiðja skapi strax 6-8 störf
Undirbúningur að stofnun vatnsáfyllingarverksmiðju á Borgarfirði eystra er áfram í fullum gangi. Áformað er að reisa 900 fermetra byggingu yfir verksmiðjuna.„Þetta er bara spurning um hvernig er hægt að nýta þennan mannskap“
Í janúar var stofnað félag fjarbúa á Borgarfirði eystra. Þórhalla Guðmundsdóttir er formaður félagsins og segir markmið félagsins fyrst og fremst vera að styðja samfélagið á Borgarfirði og leggja eitthvað af mörkum.